fbpx
Föstudagur 13.desember 2024
Eyjan

„Þolinmæði þeirra sem kusu Vinstri Græn út af umhverfismálum er þrotin“

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 19. febrúar 2023 09:45

Auður Önnu Magnúsdóttir Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Doktor Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar er gestur Einars Bárðarsonar í nýjasta þættinum af Einmitt. Auður tók við starfinu um mitt ár 2018 þegar Guðmundur Ingi Guðbrandsson fyrirrennari hennar var gerður að ráðherra VG í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Þau Einar ræða laxeldi í sjó og á landi, þau ræða yfirvofandi vindmylluvæðingu landsins og ákvörðunartökuna sem Landvernd berst fyrir að sé á forsendum náttúrunnar og verndar á henni.

Telur engar líkur á því að fara aftur á COP ráðstefnu

Aðspurð að þvi á hvaða vegferð hin árlega Cop ráðstefna er og hvað henni finnst um ákvörðun skipuleggjenda hennar að halda hana í arabísku furstadæmunum næst eftir illa skipulagða Cop27 í Egyptalandi segir hún: „Ég ætla ekki að svara fyrir þetta, mér finnst þetta algjörlega galin ákvörðun. Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer á Cop og ég geri ekki ráð fyrir að fara aftur.“ Hún segist ekki vera á móti því að fólk ferðist til að ræða málin og bera saman bækur sínar en ráðstefnan hafi verið alltof stór og greinilegt að sóknarlið hagsmunagæslunnar sé búið að festa klærnar í þennan vettvang.

Kjósendur umhverfisverndar eru landlausir í pólitík

Auður segir að umhverfisverndarsinnar séu munaðarlausir í dag eftir að  tilraun Vinstri grænna til að toga Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn nær sér í umhverfissmálum hafi mistekist. Forsendur fyrra stjórnarsamstarfs þessara flokka á árunum 2018 til 2021. Flokkarnir fóru mjög vel að af stað og gerðu einn mesta umhverfissinna landsins að umhverfisráðherra, en hálendisþjóðgarður og alvöru aðgerðir í loftslagsmálum hafi að engu orðið. Það hafi verið svik Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins við VG. „Þolinmæði þeirra sem kusu Vinstri Græn út af umhverfismálum er þrotin eftir að VG ákvað þrátt fyrir þetta að endurnýja þessa stjórn eftir síðustu kosningar.“

Grænþvottur í sinni tærustu mynd

Talið berst að Umhverfisverðlaunum atvinnulífsins sem afhent voru í haust en Norðurál fékk viðurkenningu sem Umhverfisfyrirtæki ársins 2022 og vakti umtal.  „Þetta er algjörlega óskiljanleg ákvörðun og þetta er grænþvottur í sinni tærustu mynd,“ segir Auður um ákvörðunina, sem var sögð tekin á forsendum þess að Norðurál ætlaði að draga saman losun um 40% í þeim hluta starfseminnar sem tengist ekki álframleiðslu. „Auðvitað verður fólk ringlað. Þarna er fyrirtæki sem notar um 25% af allri raforku sem framleidd er á Íslandi og er ábyrgt á 10% af allri losun á Íslandi að utan landnýtingu.“

Hugverkaiðnaðurinn við það að taka fram úr álframleiðslu

Þegar framtíð álvera á Íslandi var hvað mest rædd síðast hér á landi kom það fram að útflutningsverðmæti áls frá Íslandi væri um 200 milljarðar á meðan að vaxandi hugverkaiðnaður skilaði sama ár 139 milljarðar. „Álverin nota 65% af allri raforku sem við framleiðum á landinu og við fáum mjög lítið fyrir það og það er mjög slæm nýting á orku.“

Þetta þurfi að vega og meta út frá þörfum samfélagsins og um það sé ekki sátt í dag ef hún var það nokkurn tíma.

Samtalið er í senn upplýsandi og afslappað og Auður nær að draga upp nokkuð skýra mynd af því hvernig varnarbarátta íslenskrar náttúru lítur út þaðan sem hún situr, í stafni elstu og stærstu náttúruverndarsamtaka Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Brynjar Níelsson: Mistök að leyfa þjóðinni ekki að ákveða hvort hún vildi fara inn í Evrópusambandið – Viðreisn þurfti ekki að verða til

Brynjar Níelsson: Mistök að leyfa þjóðinni ekki að ákveða hvort hún vildi fara inn í Evrópusambandið – Viðreisn þurfti ekki að verða til
Eyjan
Fyrir 3 dögum

KAPP kaupir bandarískt fyrirtæki í Seattle

KAPP kaupir bandarískt fyrirtæki í Seattle
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn saknar Óla Björns – „Það munar misjafnlega mikið um framlag þeirra sem hverfa úr þingsölunum“

Björn saknar Óla Björns – „Það munar misjafnlega mikið um framlag þeirra sem hverfa úr þingsölunum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Birgir segir að Þórður Snær sé réttkjörinn: „Þetta á sér ekki fordæmi svo ég viti til“

Birgir segir að Þórður Snær sé réttkjörinn: „Þetta á sér ekki fordæmi svo ég viti til“