Fasteignasalinn Hannes Steindórsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi sem fram fer þann 12. mars næstkomandi. Hannes, sem rekur Fasteignasöluna Lind og er formaður Félags fasteignasala, sækist eftir 4. sæti á lista flokksins.
Í tilkynningu á Facebook-síðu sinni segist Hannes vilja leggja sitt af mörkum til að gera góðan bæ enn betr.
„Þið ykkar sem þekkið mig vitið að ég er duglegur, heiðarlegur og þegar ég tek að mér verkefni þá er ekkert hálfkák. Það er hollt fyrir Kópavog að fá nýtt fólk í bæjarstjórn og ég er sannfærður um að ég geti lagt mitt að af mörkum að gera gott betra. Ég er Kópavogsbúi og vill hvergi annarstaðar vera,“ skrifar Hannes.