fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025
Eyjan

Sjáðu hvernig ríkisstjórnin ætlar að bregðast við Samherjamálinu vegna „hugsanlegs orðsporshnekkis“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 19. nóvember 2019 13:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að grípa til eftirfarandi aðgerða í því skyni að auka traust á íslensku atvinnulífi, sem talið er að hafi beðið álitshnekki eftir Samherjamálið og skráningu Íslands á gráan lista FATF.

Aðgerðirnar eru eftirfarandi:

1. Auka gagnsæi í rekstri stærri óskráðra fyrirtækja
Undirbúningur er hafinn að lagafrumvarpi um ríkari upplýsingaskyldu hlutfallslega stórra fyrirtækja sem geta haft kerfislæg áhrif í íslensku efnahagslífi. Til skoðunar er að gera ríkari kröfur til slíkra fyrirtækja um upplýsingar um rekstur, efnahag og góða stjórnarhætti. Meðal annars er höfð hliðsjón af kröfum sem gerðar eru til fyrirtækja sem skráð eru í kauphöll. Er þetta gert til að auka gagnsæi um starfsemi þessara fyrirtækja og tryggja betur heilindi og orðspor íslensk atvinnulífs. Þá er þetta í samræmi við nýlega ráðgjöf Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, AGS. Þessi vinna er til viðbótar við fyrirhugað frumvarp á þingmálaskrá ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um breytingar á lögum um ársreikninga til að tryggja gagnsæi í upplýsingagjöf í reikningsskilum stórra óskráðra fyrirtækja í samræmi við tilskipun ESB.

2. Auka gagnsæi í rekstri stórra sjávarútvegsfyrirtækja
Þær kröfur um aukið gagnsæi sem koma fram í 1. tölulið munu til fyrirtækja í öllum atvinnurekstri. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur óskað eftir því að við þessa vinnu verði tekið til sérstakrar skoðunar hvort gera þurfi enn ríkari kröfur um gagnsæi til stærri sjávarútvegsfyrirtækja.

3. Stuðla að úttekt og úrbótum á fiskveiðum á alþjóðavettvangi
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun hafa frumkvæði að því að Alþjóðamatvælastofnunun (FAO) vinni úttekt á viðskiptaháttum útgerða sem stunda veiðar og eiga í viðskiptum með aflaheimildir þ. á m. í þróunarlöndum. Á grundvelli úttektarinnar vinni FAO tillögur til úrbóta í samvinnu við aðrar alþjóðlegar stofnanir sem vinna að heilbrigðum viðskiptaháttum, gegn spillingu, mútum og peningaþvætti.

FAO er stærsta alþjóðlega stofnunin sem sinnir reglubundnu starfi hvað varðar aðgerðir til að bæta stjórn fiskveiða og þróun sjávarútvegs á heimsvísu. Á vettvangi stofnunarinnar hafa verið gerðir alþjóðasamningar m.a. til að takast á við ólöglegar veiðar og bæta stjórn og upplýsingagjöf með fiskveiðum. Verkefnið fellur því vel að hlutverki stofnunarinnar.

4. Ljúka endurskoðun á skilgreiningu á tengdum aðilum fyrir áramót
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu frá því í janúar sl. kemur fram að ekki verði séð að Fiskistofa kanni hvort yfirráð tengdra aðila í sjávarútvegi yfir aflahlutdeildum sé í samræmi við það hámark sem er skilgreint í lögum um stjórn fiskveiða. Ráðast þurfi í endurskoðun á 13. og 14. gr. laganna svo reglur um hámarksaflahlutdeild séu skýrar.

Í mars 2019 skipaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra verkefnisstjórn undir forystu Sigurðar Þórðarsonar fyrrverandi ríkisendurskoðanda til að koma með tillögur um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni. Nefndinni var m.a. falið að bregðast við fyrrgreindri ábendingu Ríkisendurskoðunar. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur nú óskað eftir því við nefndina að hún skili tillögum þar að lútandi fyrir 1. janúar nk. Þá er að vænta tillagna frá nefndinni á næstu vikum um bætt eftirlit með fiskveiðum og með vigtun sjávarafla.

5. Tryggja viðbótarfjárveitingar til skattrannsókna
Komið hafa fram ýmis atriði sem þarfnast ítarlegrar skoðunar af hálfu Skattrannsóknarstjóra og Ríkisskattstjóra. Í ljósi umfangs og flækjustigs slíkra mála hefur ríkisstjórnin ákveðið að stofnununum verði gert kleift að auka mannafla tímabundið til að geta sinnt þessum verkefnum á sem skjótastan og farsælastan hátt.

6. Varnir gegn hagsmunaárekstrum og mútubrotum
Á ríkisstjórnarfundinum fór forsætisráðherra yfir þau umbótaverkefni sem hafa verið í vinnslu eða eru í mótun í forsætisráðuneytinu um aukið gagnsæi og traust, þ. á m. breytingar á upplýsingalögum, frumvarp til laga um vernd uppljóstrara og fyrirhugað frumvarp forsætisráðherra um varnir gegn hagsmunaárekstrum. Þá fór dómsmálaráðherra yfir löggjöf, alþjóðasamninga og þau atriði sem unnið hefur verið að og varða mútubrot og peningaþvætti. Þá verður hugað sérstaklega að fjármögnun rannsóknar héraðssaksóknara í tengslum við rannsókn embættisins á Samherjamálinu.

7. Viðbrögð erlendis
Á fundi ríkisstjórnarinnar var fjallað um Samherjamálið með tilliti til alþjóðasamskipta. Hvorki utanríkisráðuneytið, sendiskrifstofur né viðskiptafulltrúar ekki fengið teljandi fyrirspurnir eða athugasemdir frá stjórnvöldum annarra ríkja eða alþjóðlegum og svæðisbundnum samtökum. Utanríkisráðuneytið fylgist með umfjöllun erlendis og hefur undirbúið viðbrögð vegna hugsanlegs orðsporshnekkis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Fram til þessa hafa engar kynstaðfestandi skurðaðgerðir farið fram hjá skjólstæðingum barna- og unglingageðdeildar undir 18 ára aldri“

„Fram til þessa hafa engar kynstaðfestandi skurðaðgerðir farið fram hjá skjólstæðingum barna- og unglingageðdeildar undir 18 ára aldri“
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Blús á brautarpalli

Óttar Guðmundsson skrifar: Blús á brautarpalli
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðrún Hafsteinsdóttir veit ekki í hvorn fótinn hún á að stíga – seldi hún sannfæringuna fyrir völd?

Orðið á götunni: Guðrún Hafsteinsdóttir veit ekki í hvorn fótinn hún á að stíga – seldi hún sannfæringuna fyrir völd?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Framkvæmdastjóri N1: Látum breytingar koma hratt fram í verðinu – bæði til lækkunar og hækkunar

Framkvæmdastjóri N1: Látum breytingar koma hratt fram í verðinu – bæði til lækkunar og hækkunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vilhjálmur bálreiður út í ríkisstjórnina

Vilhjálmur bálreiður út í ríkisstjórnina
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Stöðugleiki skiptir mestu máli

Thomas Möller skrifar: Stöðugleiki skiptir mestu máli