fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Drífa segir veggjöld ekki til umræðu nema eitthvað fáist í staðinn

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 16. október 2019 10:45

Drífa Snædal Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Drífa Snædal, forseti ASÍ, sagði í ræðu sinni á formannafundi ASÍ í dag, að Alþýðusambandið myndi ekki samþykkja veggjöldin án þess að nokkuð kæmi í staðinn. Sem kunnugt er hyggst ríkisstjórnin í samvinnu við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ráðast í 120 milljarða uppbyggingu vegakerfisins og Borgarlínu á næstu 15 árum,  hvar veggjöld eiga að standa fyrir 60 milljörðum.

Drífa sagði veggjöldin algerlega óútfærð og því erfitt að vera með þeim eða á móti:

„Ég hef ekki skotið loku fyrir það að veggjöld verði sett upp en það þarf að vera á forsendum jafnaðar, að það vinni ekki gegn okkar markmiðum og komi ekki niður á þeim sem síst skyldi,“

sagði Drífa og lagði til að nýta mætti tilfærslu í gegnum barnabætur og húsnæðisbætur í samhengi við nýja álagningu:

„Hvort sem það eru grænir eða gráir skattar eða hvaða litapallettu við viljum setja á það. Við eigum að vera til viðræðu um að efla barnabótakerfin í samhengi við græna skatta og auðvitað eigum við að þrýsta á um almennilegar almenningssamgöngur, umhverfi og fólki til heilla. En að setja á almennan nefskatt eins og veggjöld sem er íþyngjandi fyrir almenning án þess að nokkuð komi í staðinn er ekki til umræðu.“

Vilja sæti við borðið

Drífa nefndi einnig að óhugsandi væri að ASÍ kæmi ekki að málinu sem snerti heimilin með þessum hætti:

„Við ætlum hreyfingunni sæti við borðið þar sem þessar ákvarðanir verða teknar og það er óhugsandi að taka afdrifaríkar ákvarðanir sem snertir heimilisbókhald fólks án þess að við séum þar. Við þurfum ávallt að vera tilbúin í slíka umræðu sem hreyfing og þá þurfum við líka að hafa rætt málin innbyrðis.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki