fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024

Veggjöld

Meirihlutinn styður veggjöld til jarðgangagerðar

Meirihlutinn styður veggjöld til jarðgangagerðar

Eyjan
05.08.2022

Rúmlega 60% þeirra sem tóku afstöðu í nýrri könnun Prósents styðja að ríkið fjármagni jarðgangagerð að hluta til eða alveg með veggjöldum. Rúm 4% vilja ekki að ríkið fjármagni jarðgangagerð. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að 35,7% vilja að ríkið fari blandaða leið með veggjöldum og skattfé. 24,4% vill að veggjöld standi alfarið undir kostnaðinum við gangagerð. Samtals eru Lesa meira

Líkir framgöngu meirihlutans við árásir á efri byggðir – „Þetta er ljótur leikur“

Líkir framgöngu meirihlutans við árásir á efri byggðir – „Þetta er ljótur leikur“

Eyjan
24.10.2019

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, segir meirihlutann í borgarstjórn vera með „árásir“ á efri byggðir Reykjavíkurborgar vegna ýmissa mála tengdum úthverfum borgarinnar, í grein í Morgunblaðinu í dag: „Íbúum í efri byggðum borgarinnar finnst borgaryfirvöld sinna þeim síður. Framkvæmdir og uppbygging sé meiri í vesturhlutanum, auk þess sem dregið er úr uppbyggingu í austurhluta Lesa meira

Sjálfstæðismaður segir veggjöldin koma verst niður á þessum hópi fólks – Tilheyrir þú honum ?

Sjálfstæðismaður segir veggjöldin koma verst niður á þessum hópi fólks – Tilheyrir þú honum ?

Eyjan
17.10.2019

Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, ritar um samgöngusáttmálann í Morgunblaðið í dag. Þar segir hann að sjálfstæðismönnum þyki verst hversu lítið og illa útfærður sáttmálinn sé og undrast að ekkert arðsemismat hafi farið fram: „Það er ekki ábyrgt af stjórnmálamönnum að ana af stað í stórframkvæmdir án þess að hnýta alla lausa enda, hvað þá að Lesa meira

Drífa segir veggjöld ekki til umræðu nema eitthvað fáist í staðinn

Drífa segir veggjöld ekki til umræðu nema eitthvað fáist í staðinn

Eyjan
16.10.2019

Drífa Snædal, forseti ASÍ, sagði í ræðu sinni á formannafundi ASÍ í dag, að Alþýðusambandið myndi ekki samþykkja veggjöldin án þess að nokkuð kæmi í staðinn. Sem kunnugt er hyggst ríkisstjórnin í samvinnu við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ráðast í 120 milljarða uppbyggingu vegakerfisins og Borgarlínu á næstu 15 árum,  hvar veggjöld eiga að standa fyrir Lesa meira

Er þetta besta lausnin við umferðarvandamálinu í Reykjavík ? – „Geggjuð hugmynd að vestan“

Er þetta besta lausnin við umferðarvandamálinu í Reykjavík ? – „Geggjuð hugmynd að vestan“

Eyjan
03.10.2019

Að ráðast á orsök vandans er inntakið í grein þeirra Hallgríms Sveinssonar bókaútgefanda, Guðmundar Ingvarssonar, fyrrverandi stöðvarstjóra Pósts og síma á Þingeyri og Bjarna G. Einarssonar, fyrrverandi útgerðarstjóra KD á Þingeyri, í Morgunblaðinu í dag. Vandamálið sem þeir félagar vilja leysa er umferðarteppan í Reykjavík, sem þeir líkja við neyðarástandi, enda hafi vandamálinu verið leyft Lesa meira

„Afleitur stjórnmálamaður, lýðskrumari og lýgur að kjósendum“ – Hlustaðu á hvað Sigurður Ingi sagði um veggjöld árið 2017

„Afleitur stjórnmálamaður, lýðskrumari og lýgur að kjósendum“ – Hlustaðu á hvað Sigurður Ingi sagði um veggjöld árið 2017

Eyjan
30.09.2019

„Sigurður Ingi Jóhannsson er afleitur stjórnmálamaður, lýðskrumari og lýgur að kjósendum til þess að ná í atkvæði fyrir hinn deyjandi Framsóknarflokk.“ Svo skrifar Kristjón Kormákur Guðjónsson, ritstjóri Hringbrautar í dag og vísar í kosningaloforð formanns Framsóknarflokksins frá árinu 2017 þegar Sigurður Ingi sagðist í útvarpsþætti á Rás 2  í aðdraganda kosninga með þingmönnum Suðurkjördæmis, vera Lesa meira

Munurinn á vegtollum og bensíngjaldinu yfir 812 prósent  – „Veggjöld eru klikk“

Munurinn á vegtollum og bensíngjaldinu yfir 812 prósent  – „Veggjöld eru klikk“

Eyjan
30.09.2019

Mikið er rætt um fyrirhuguð veggjöld þessi dægrin og hversu sanngjörn, eða ósanngjörn þau eru á almenning. Eiga veggjöldin að koma í stað fyrir bensíngjaldið með tíð og tíma til að fjármagna samgönguframkvæmdir og munu þau einnig ná yfir rafmagnsbíla og bíla knúna annarskonar orkugjöfum, sem hingað til hafa fengið ýmsar undanþágur frá opinberum gjöldum Lesa meira

Forstjóri Persónuverndar um veggjöld – „Þá er spurningin hvernig samfélagi við viljum lifa í“

Forstjóri Persónuverndar um veggjöld – „Þá er spurningin hvernig samfélagi við viljum lifa í“

Eyjan
30.09.2019

Rafræna eftirlitskerfið sem mun koma til með að innheimta veggjöld af vegfarendum frá árinu 2022, verði samgöngufrumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar samþykkt á Alþingi, verður að öllum líkindum byggt á rafrænu kerfi með hundruðum myndavéla um alla koppa og grundir sem lesa bílnúmer þeirra sem um fara og rukka í samræmi við það. Því er um Lesa meira

Björn Leví fann glufu varðandi veggjöldin –„ Hægt að skilja samkomulagið á allt öðruvísi hátt“

Björn Leví fann glufu varðandi veggjöldin –„ Hægt að skilja samkomulagið á allt öðruvísi hátt“

Eyjan
27.09.2019

Í gær var undirritað samkomulag um samgönguuppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu af fulltrúum ríkisins og sveitarfélaganna upp á tugmilljarða framkvæmdir til næstu ára. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata tjáir sig um samkomulagið á Facebook. Hann gagnrýnir hversu fáir komu að gerð þess og segir orðalagið býsna einhliða hvað veggjöld varðar: „…en það er glufa. Það fer ekki Lesa meira

Sigurður Ingi um vegtolla: Nú heitir það forgangsgjald

Sigurður Ingi um vegtolla: Nú heitir það forgangsgjald

Eyjan
25.09.2019

Sigurður Ingi Jóhansson, samgönguráðherra, kynnti breytta forgangsröðun á samgönguáætlun í gær er hann hélt fundi á Vík, Kirkjubæjarklaustri og Höfn. Sigurður nefndi að flestar þær framkvæmdir sem rætt var um á svæðinu gætu orðið að veruleika fyrr en ella, með svokölluðu forgangsgjaldi, sem virðist enn ein nafnbótin yfir vegtolla, veggjöld eða vegskatta, sem gagnrýnendur segja Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af