Eyjan

Enn meiri taprekstur hjá Árvakri: „Ráðist hef­ur verið í um­fangs­mikl­ar aðgerðir“

Mynd
Haraldur Johannessen. Mynd-mbl.is

Útgefandi Morgunblaðsins, Árvakur hf., var rekinn með tapi upp á 415 milljónir í fyrra. Er það enn meiri tap en árið á undan, þegar heildartapið nam 284 milljónum, en undir félagið heyra einnig mbl.is og útvarpsstöðin K100. Morgunblaðið greinir frá.

Afkoman var neikvæð um 238 milljónir eftir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA), tekjurnar jukust um 110 milljónir og námu alls 3.8 milljörðum, en gjöld og launakostnaður skýra versnandi afkomu milli ára.

Haraldur Johannessen, framkvæmdastjóri Árvakurs og annar ritstjóri Morgunblaðsins, segir rekstrarumhverfið erfitt, ekki síst vegna stöðu RÚV:

„Ráðist hef­ur verið í um­fangs­mikl­ar aðgerðir til að hagræða í rekstri fé­lags­ins og eru þær farn­ar að skila um­tals­verðum ár­angri á síðustu mánuðum. Engu að síður er rekstr­ar­um­hverfið enn erfitt, eins og ít­rekað hef­ur komið fram í op­in­berri umræðu. Sam­keppn­in við Rík­is­út­varpið hef­ur orðið sí­fellt erfiðari, en nei­kvæð umræða á vinnu­markaði, sem enn held­ur áfram þó að stærstu aðilar á vinnu­markaðnum hafi samið, hef­ur auk stórra áfalla í at­vinnu­líf­inu haft veru­lega nei­kvæð áhrif á aug­lýs­inga­markaði og þar með á rekst­ur fjöl­miðla.“

Miðlar standa sterkir

Haraldur segir útbreiðslu Árvakurs þó enn mikla og að fyrirtækið sé eitt það öflugasta á markaði:

„Erfitt rekstr­ar­um­hverfi breyt­ir því þó ekki að miðlar Árvak­urs standa mjög sterkt um þess­ar mund­ir og ná aug­um og eyr­um meira en níu af hverj­um tíu lands­mönn­um, sem ger­ir Árvak­ur að öfl­ug­asta fjöl­miðlafyr­ir­tæki lands­ins. Og Árvak­ur hef­ur þrátt fyr­ir rekstr­ar­um­hverfið haldið áfram að ráðast í breyt­ing­ar og nýj­ung­ar til að bæta þjón­ustu við not­end­ur miðlanna, nú síðast með mikl­um breyt­ing­um á mbl.is eins og lands­menn sáu fyr­ir réttri viku.“

Frá árinu 2009, þegar nýjir eigendur tóku við, hefur Árvakur tapað alls um 2.2 milljörðum króna.

Þórsmörk er eigandi Árvakurs og hluthafar Þórsmerkur eru neðangreindir:


  • Ram­ses II ehf., eig­andi Eyþór Laxdal Arn­alds, 20,05%
  • Íslenskar sjá­var­afurðir ehf.,  ­for­sv.m. Sigur­jón Rafnsson, 20,00 %
  • Hlyn­ur A ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Guðbjörg Matt­h­í­a­s­dótt­ir, 16,45 %
  • Ísfé­lag Vestmanna­eyja hf., ­for­sv.­mað­ur­ ­Stefán Friðriksson, 13,43 %
  • Legalis s­f., ­for­sv.­mað­ur­ ­Sigurbjörn Magn­ússon, 12,37 %
  • Rammi hf., ­for­sv.­mað­ur­ Ólafur Mart­einsson, 6,14 %
  • Þingey ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Að­alsteinn Ingólfsson, 3,59 %
  • Stálskip ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Halldór Krist­jánsson, 3,08 %
  • Brekku­hvarf ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Ásgeir Bolli Krist­insson, 2,05 %
  • Fari ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Jón Pálmason, 1,54 %
  • Hrað­fryst­ihúsið – Gunn­vör hf., ­for­sv.­mað­ur­ Einar Valur Krist­jánsson, 1,30 %