Bókin Karlar sem hata konur fjallar um karlmenn sem drepa konur, nauðga þeim og gera þeim allt til miska.
Að nota þetta sem yfirskrift á lista um menn sem hafa gerst sekir um óvarleg, heimskuleg eða ruddaleg ummæli á Facebook – það er í besta falli smekklaust.
Að hata er býsna þungt orð og á ekki að nota í hálfkæringi.
Það virðist líka vera algjörlega handahófskennt hvernig menn lenda á listanum – og svo er honum dreift út um internetið.
En ég held ekki að neinn af þessum mönnum sé morðingi eða nauðgari eða neitt slíkt – nokkra þeirra þekki ég reyndar og þykist vita að þeir hata ekki konur.