fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
Eyjan

Fréttablaðskönnun: 40 prósent styðja engan flokk

Egill Helgason
Föstudaginn 19. mars 2010 08:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fréttablaðskönnunin sem birtist í dag er afskaplega vond fyrir ríkisstjórnina og stjórnarflokkana, og hún kemur líka á vondum tíma þegar mikill órói er á stjórnarheimilinu. Sérstaklega er hún vond fyrir Samfylkinguna sem mælist ekki með nema 23 prósenta fylgi af þeim sem tóku afstöðu.

Sjálfstæðisflokkurinn er aftur farinn að sjá tölur sem líta út eins og þegar flokkurinn var í því fylgi sem hann á að venjast en Framsókn stendur í stað. Óánægjufylgið leitar ekki þangað.

Hins vegar er ein tala mjög áberandi í skoðanakönnuninni. Það eru þeir sem ekki taka afstöðu. Það voru 40 prósent sem ekki lýstu yfir stuðningi við neinn flokkanna.

Það er ansi há tala – en segir sína sögu um þá kreppu sem íslenska flokkakerfið er í.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Miðflokkurinn sótti handbók í lýðskrumi til Trump – beinir málflutningi sínum að fólkinu við eldhúsborðið

Orðið á götunni: Miðflokkurinn sótti handbók í lýðskrumi til Trump – beinir málflutningi sínum að fólkinu við eldhúsborðið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigvaldi Einarsson skrifar: Krónan er fallin í stríðinu – Við eigum engan annan leik en ESB

Sigvaldi Einarsson skrifar: Krónan er fallin í stríðinu – Við eigum engan annan leik en ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Bringubeinin á Ariönu Grande

Nína Richter skrifar: Bringubeinin á Ariönu Grande
Eyjan
Fyrir 1 viku

Stjórnarandstaðan gagnrýndi fjarveru Guðmundar Inga – Var svo upplýst um að ráðherra liggur á sjúkrahúsi

Stjórnarandstaðan gagnrýndi fjarveru Guðmundar Inga – Var svo upplýst um að ráðherra liggur á sjúkrahúsi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigvaldi Einarsson skrifar: Kjarnorka á Austfjörðum – eða vindmyllur á hálendinu?

Sigvaldi Einarsson skrifar: Kjarnorka á Austfjörðum – eða vindmyllur á hálendinu?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björg Magnúsdóttir: Er spennt fyrir leiðtogakjöri hjá Viðreisn – liggur undir feldi

Björg Magnúsdóttir: Er spennt fyrir leiðtogakjöri hjá Viðreisn – liggur undir feldi