fbpx
Mánudagur 19.janúar 2026
Eyjan

Hnýtir í Sigríði Andersen og spyr hvort hún sé viljandi að misskilja eða vísvitandi að blekkja

Eyjan
Föstudaginn 12. desember 2025 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, veltir fyrir sér hvort þingflokksformaður Miðflokksins sé að misskilja eða vísvitandi að reyna að blekkja þegar hún heldur því fram að gjaldtaka af bifreiðaeigendum hafi verið langt umfram það sem nokkurn tímann hafi verið sett í vegasamgöngur á Íslandi. Þingflokksformaðurinn, Sigríður Andersen, fullyrti svo í samtali við kvöldfréttir Sýnar.

Sigríður var þar að ræða kílómetragjaldið sem nú er til umræðu á Alþingi: „Hins vegar er það líka boðað að ástæðan fyrir frumvarpinu sé sú að það þurfi að fjármagna vegakerfið, það liggur hins vegar á sama tíma fyrir að gjaldtaka af bifreiðaeigendum hefur verið langt umfram það sem nokkurn tímann hefur verið sett í vegasamgöngur á Íslandi.“

Björn Leví segir það óábyrgt af þingflokksformanninum að tjá sig með þessum hætti og eins hafi það verið óábyrgt af Vísi að slengja þessu fram í fyrirsögn athugasemdarlaust. Björn skrifar á Facebook:

„Þetta er rangt og mér finnst óábyrgt að:
1. halda þessu fram
2. birta þetta sem fyrirsögn án þess að leiðrétta það á sama stað
Þessi mýta er byggð á útúrsnúningi því já, það er hægt að telja allt til varðandi skatta og gjöld af bílum og fá hærri tölu en fer í samgönguáætlun á hverju ári. En það er að telja of margt tekjumegin en skilja of margt eftir gjaldamegin.“

Segir hann að til dæmis ef það eigi að telja með virðisaukaskatt af bifreiðum inn í dæmið þá þurfi á sama tíma að telja til kostnað vegna samgangna í heilbrigðisþjónustu. Staðreyndin sé einfaldlega sú að gjöldin sem eru tekin af bílum vegna samgangna eru lægri en sá kostnaður sem hefur varið í vegasamgöngur. Ríkið hafi nánast alltaf þurft að greiða aukalega úr sameiginlegum sjóðum til samgöngumála. Sigríður sé reyndur þingmaður og eigi að vita þetta.

„En augljóslega er þetta of flókið fyrir meira að segja reynda þingmenn.

Nema það sé viljandi verið að misskilja í pólitískum tilgangi? Er vísvitandi verið að reyna að blekkja bifreiðaeigendur um að þau ætli að lækka gjöld af bílum eða hækka framlög til samgangna til þess að jafna þessa upphæð?

Því ef gjöld eru lækkuð (en samgönguáætlun ekki) þá borgar eitthvað annað fyrir mismuninn. Ef framlög til samgangna eru aukin þá er eitthvað annað vanfjármagnað í staðinn – og vert er þá að spyrja hvað, í staðinn fyrir að koma með svona fyrirsögn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Rangt að segja engar undanþágur í boði – öll aðildarríki hafa fengið varanlegar sérlausnir um sína grundvallarhagsmuni

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Rangt að segja engar undanþágur í boði – öll aðildarríki hafa fengið varanlegar sérlausnir um sína grundvallarhagsmuni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan skrópar á nefndarfundum – Miðflokkurinn fremstur meðal jafningja

Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan skrópar á nefndarfundum – Miðflokkurinn fremstur meðal jafningja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Spurt um skilning jafnaðarmanna 2026

Þorsteinn Pálsson skrifar: Spurt um skilning jafnaðarmanna 2026
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vilhjálmur Egilsson: Ásthildar Lóu málið var verra fyrir Sjálfstæðismenn en málþófið – sátu eftir í fjóshaugnum

Vilhjálmur Egilsson: Ásthildar Lóu málið var verra fyrir Sjálfstæðismenn en málþófið – sátu eftir í fjóshaugnum