fbpx
Mánudagur 19.janúar 2026
Eyjan

Sanna býður sig fram fyrir nýtt stjórnmálaafl

Eyjan
Föstudaginn 12. desember 2025 14:08

Sanna Magdalena Mörtudóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins í Reykjavík býður sig fram til endurkjörs í næstu kosningum sem fram fara næsta vor. Þessu greinir hún frá í myndbandi á samfélagsmiðlum en þar segist hún ætla að bjóða sig fram fyrir annað framboð og boðar félagshyggjufólk til fundar við sig um stofnun slíks framboðs og hvetur til þess að stjórnmálaflokkar á vinstri vængnum sameinist um það.

Sanna nefnir þetta framboð Vor til vinstri og hefur opnað heimasíðu þess. Á síðunni segir meðal annars að heimili fólks hafi verið markaðsvædd, verktökum, bröskurum og leigusölum til hagnaðar. Afleiðingarnar séu þekktar. Fólk þurfi að flytja úr borginni til að finna húsnæði á viðráðanlegu verði eða festist í ömurlegum, ótryggum aðstæðum.

Sjálfsögð þjónusta við börn eins og tómstundir sé of dýr. Hið sama megi segja um almenningssamgöngur sem séu þar að auki tímafrekar.

Í myndbandinu imprar Sanna á þessu og segir of dýrt að lifa í Reykjavík.

Sósíalistar

Kastast hefur í kekki milli Sönnu og forystu Sósíalistaflokksins og gegnir hún ekki lengur stöðu pólitísks leiðtoga flokksins hún ætlar þó ekki að hætta í flokknum. Sanna segir á heimasíðu Vors til vinstri:

„Það er ekkert leyndarmál að innan sósíalistaflokksins hafa orðið miklar breytingar. Ný stjórn hefur skapað óvissu og togstreitu meðal félaga, bæði innan sem utan flokks. Fjöldi fólks hefur áhyggjur af því hvert flokkurinn stefnir. Ég skil þær áhyggjur mjög vel.  En ég er sannfærð um að þessi tímabundna óvissa verði stuttur kafli í sögu flokksins. Kjarninn í minni nálgun er enn sá sami; efnahagslegt og félagslegt réttlæti.

Ég starfa fyrir grasrótina og fólkið í borginni. Þess vegna ætla ég ekki að segja mig úr flokknum, þrátt fyrir þrýsting frá nýrri stjórn. Ég trúi því að á næsta aðalfundi taki fólk við stjórn sem hefur skýra sýn, heiðarleika og stuðning meirihluta félaga. 

Þar til ætla ég að halda áfram að vinna af fullum krafti fyrir þau gildi sem sameina vinstra fólk. Því baráttan framundan er stærri en flokkar. Baráttan krefst samstöðu allra þeirra sem vilja réttlátari, ódýrari og lífvænlegri borg.“

Saman

Sanna hvetur til þess í myndbandinu að flokksmerki verði lögð til hliðar. Hún segir á heimasíðunni að skapa þurfi grundvöll fyrir öflugt vinstra framboð í þágu fólksins í borginni — óháð flokksmerkjum.

Þörf sé á sameiginlegum vettvangi þar sem hugmyndir fólks fái að blómstra og unnið sé út frá því sem sameinar, en ekki því sem sundrar.

Sanna segist bjóða til samtals um borgina en hvetur fólk í öðrum sveitarfélögum til að taka þátt því vandinn sem við sé að etja sé víðar en í borginni.

Á heimasíðu Vors til vinstri er enn sem komið er bara mynd af Sönnu og fólki boðið að styrkja framboðið en gefið er upp reikningsnúmer og einstaklingskennitala, sem líklega tilheyrir Sönnu sjálfri, sem þýðir að umrætt framboð hefur ekki verið formlega stofnað.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Rangt að segja engar undanþágur í boði – öll aðildarríki hafa fengið varanlegar sérlausnir um sína grundvallarhagsmuni

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Rangt að segja engar undanþágur í boði – öll aðildarríki hafa fengið varanlegar sérlausnir um sína grundvallarhagsmuni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan skrópar á nefndarfundum – Miðflokkurinn fremstur meðal jafningja

Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan skrópar á nefndarfundum – Miðflokkurinn fremstur meðal jafningja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Spurt um skilning jafnaðarmanna 2026

Þorsteinn Pálsson skrifar: Spurt um skilning jafnaðarmanna 2026
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vilhjálmur Egilsson: Ásthildar Lóu málið var verra fyrir Sjálfstæðismenn en málþófið – sátu eftir í fjóshaugnum

Vilhjálmur Egilsson: Ásthildar Lóu málið var verra fyrir Sjálfstæðismenn en málþófið – sátu eftir í fjóshaugnum