fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Eyjan

Öllum sama um Live 8

Egill Helgason
Miðvikudaginn 1. janúar 2003 00:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég er að koma frá einum minnst netvædda stað í Evrópu, eyjunni Folegandros. Einu tölvurnar sem var hægt að komast í voru tveir ofurhægir forngripir á lítilli skrifstofu sem selur miða í ferjur – undir vökulu augnaráði yngstu piparjónku Grikklands, stúlku sem getur varla verið meira en sextán ára en hefur tileinkað sér viðmót piparkerlingar af einstakri natni.

Á þessum stað tókst okkur alveg að missa af Live 8, ég hafði ekki hugmynd um það fyrr en í gærkvöldi að þetta hefði farið fram – fremur en nokkur maður á eyjunni. Ég varð aldrei var við að neinn fylgdist með fréttum þá tíu daga sem við vorum þar. Hins vegar var þar haldið brúðkaup á laugardagskvöldið, veislan var á sjálfu aðaltorgi bæjarins og allir sem áttu leið um töldust brúðkaupsgestir, fengu vín og mat og máttu taka þátt í dansinum.

— — —

Ég sá á vefnum um daginn frétt um að Evrópa væri tuttugu árum á eftir Ameríku, eitthvert verslunarráðið hafði komist að þessari niðurstöðu. En samkvæmt hvaða mælikvarða? Er það varðandi frítíma, lífeyri, almenna heilsugæslu, vellíðan borgaranna, fjölskyldubönd? Það eru að sönnu ýmsar leiðir til að skoða þetta.

Hér í Grikklandi eru þeir að bjástra við að einkavæða OTE, hið gríðarmikla ríkissímafyrirtæki (ég hef sjaldan vitað fólk sem talar jafnmikið í síma og Grikkir). Ég las einhvers staðar að hátt í sextíu prósent starfsmannanna séu taldir óþarfir. Nú kemur væntanlega einhver Björgólfur og kaupir fyrirtækið – við ættum kannski að gera það saman?

Þegar ég vann hjá póstinum ungur maður fyrir tuttugu og fimm árum, undraðist ég oft hversu margt starfsfólk var þar. Sumir virtust ekki alveg heilir heilsu – þarna var til dæmis maður sem með miklu átaki hafði náð þeim áfanga að geta lesið utan á bréf og þar af leiðandi borið út póst. En bara rétt svo.

Nú hefur orðið gríðarleg fjölgun öryrkja. Sjálfsagt er mikið af því fólki sem þá vann á póstinum á örorkubótum núna. Eru það framfarir?

— — —

Eins og ég segi fór Live 8 framhjá mér. Mér skilst þó að þetta sé mesti fjölmiðlaviðburður allra tíma. En á Folegandros var öllum hjartanlega sama. Gerir svonalagað eitthvert gagn? Maður veit satt að segja ekki. Live Aid skildi ekki mikið eftir á sínum tíma. Bob Geldorf hefur meira að segja verið sakaður um að vera að vissu leyti meðsekur í hungursneyðinni í Eþíópíu í kringum 1985 – ásamt með hjálparsamtökum á borð við Oxfam.

Þetta segir að minnsta kosti David Rieff, sérfræðingur í hjálparstarfi, í mikilli grein sem hann ritaði í Guardian í síðustu viku. Rieff telur að framlög frá Live Aid og fleirum hafi hjálpað harðstjóranum Mengistu Haile Mariam við að reka þjóð sína inn á samyrkjubú samkvæmt hinni dólgslegu marxísku kenningu sem hann aðhylltist. Hungursneyðin í Eþíópíu á þessum tíma hafi að miklu leyti verið af mannavöldum, ekki ósvipað og gerðist í samyrkjuvæðingu Stalíns og síðar Maós.

Samtök eins og Médecins sans Frontières hafi verið meðvituð um þetta, mótmælt og síðan hætt starfi í Eþíópíu– til að leggja harðstjóranum ekki lið. Bob Geldorf hafi hins vegar látið eins og pólitíkin skipti engu máli og í raun alltaf neitað að ræða málið. Rieff telur að það sé í meira lagi einfeldningsleg afstaða að veita hjálp af þessu tagi án þess að láta sig nokkru varða aðstæðurnar á svæðinu.

— — —

Íslensk kona sem var með mér í grískutímum í vetur hefur verið með myndlistarsýningu hérna á eyjunni Sifnos þar sem við erum stödd í dag. Í gær skilst mér að hafi verið lokakvöld sýningarinar en þá gerði óvænt þrumuveður og rigningu – ég hef aldrei séð rigningu hérna á eyjunum í júlí. Stundum kemur ekki dropi úr lofti frá apríl fram í september.

En við komumst semsagt ekki á sýninguna – sem er sorglegt því þarna hafa sjálfsagt verði Dorrit og Ólafur Ragnar og Jón Ásgeir og Ingibjörg og við hefðum kannski getað fengið far í þotunni á leiðinni heim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir í hljóði og mynd

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir í hljóði og mynd
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Grenjað á gresjunni

Svarthöfði skrifar: Grenjað á gresjunni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Undirrita samninga við Neos-flugfélagið um leiguflug

Undirrita samninga við Neos-flugfélagið um leiguflug
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir forsetaframboðið ekki vera viðbrögð við því að leggja eigi starfið hennar niður

Segir forsetaframboðið ekki vera viðbrögð við því að leggja eigi starfið hennar niður
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér