fbpx
Föstudagur 17.maí 2024
Eyjan

Atli Þór ráðinn til Pírata

Eyjan
Fimmtudaginn 2. maí 2024 13:45

Atli Þór Fanndal.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Atli Þór Fanndal, fyrrverandi framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International, hefur verið ráðinn til þingflokks Pírata í starf samskiptastjóra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.

„Við erum ótrúlega spennt að fá Atla aftur til liðs við okkur og njóta krafta hans,“ er haft eftir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingflokksformanni Pírata í tilefni ráðningarinnar.

„Við í þingflokknum höfum áður átt gott samstarf í aðdraganda þingkosninga 2017 og við stjórnarmyndunarviðræður sem eftir fylgdu og þekkjum því vel til þess hversu drífandi og atorkusamur hann er. Nú þegar kosningar nálgast á ný er mikill fengur að fá Atla til starfa sem samskiptastjóra þingflokksins.“

Atli hefur áður starfað fyrir Pírata árið 2017 og 2018 þegar hann starfaði um sex mánaða skeið sem pólitískur ráðgjafi hjá flokknum annars vegar vegna alþingiskosninga 2017 og sveitarstjórnarkosningar 2018.

„Það kemur væntanlega engum á óvart að Píratar séu minn náttúrulegi flokkur,“ segir Atli í tilkynningunni.

„Píratar standa alltaf mannréttindavaktina. Píratar eru augljóslega umhverfisflokkurinn á þingi og það sem skiptir mig mestu máli er að hér er flokkur sem er vænt um fólk. Ég hlakka auðvitað til þess að eiga þátt í því að almenningur fái hér nýja ríkisstjórn sem allra fyrst. Það finnst varla nokkur manneskja til á Íslandi lengur sem ekki er spennt fyrir því,“ bætir hann við.

Atli hefur víðtæka reynslu af fréttamennsku, verkefnastjórnun og ráðgjöf er varðar stefnumótun og stjórnmál. Atli hefur undanfarin ár starfað hjá Transparency International á Íslandi með fram störfum fyrir Space Iceland sem ráðgjafi fyrir fyrirtæki tengdum geimvísindum, rannsóknum og þróun. Hann starfaði áður sem blaðamaður meðal annars á DV, Reykjavík vikublaði og Kvennablaðinu auk BBC, The Telegraph, CBC og Der Freitag svo dæmi séu nefnd.  Atli starfaði um tíma á skrifstofu Annette Brooke, þingkonu Frjálslyndra Demókrata í Mið-Dorset og Norður Poole í Bretlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Kolbrún komin með nóg af bókhaldslykla-kraðaki og segir að borgin eigi ekki að rannsaka sig sjálf í umdeildu málunum

Kolbrún komin með nóg af bókhaldslykla-kraðaki og segir að borgin eigi ekki að rannsaka sig sjálf í umdeildu málunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Endurreisa þarf forgang almennings til orku hér á landi

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Endurreisa þarf forgang almennings til orku hér á landi
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Umsækjandi um varaseðlabankastjórastöðu fékk tugmilljóna félag frá lögmanni sem rukkar bankann um hundruð milljóna

Umsækjandi um varaseðlabankastjórastöðu fékk tugmilljóna félag frá lögmanni sem rukkar bankann um hundruð milljóna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Mögnum tækifærin á hverjum stað og stækkum tækifæri okkar allra

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Mögnum tækifærin á hverjum stað og stækkum tækifæri okkar allra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – Lofa að skrifa aldrei undir lög er varða auðlindir eða náttúru og lífríki Íslands

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – Lofa að skrifa aldrei undir lög er varða auðlindir eða náttúru og lífríki Íslands
Eyjan
Fyrir 1 viku

Uppnám varð í breska þinginu skömmu áður en fyrirspurnatími forsætisráðherra hófst

Uppnám varð í breska þinginu skömmu áður en fyrirspurnatími forsætisráðherra hófst