fbpx
Laugardagur 03.maí 2025
Fréttir

Tveir unglingar réðust á erlenda ferðamenn á Skólavörðustíg – Annar stuttur en hinn feitur

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 23. nóvember 2024 14:30

Árásin átti sér stað nálægt Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erlendur ferðamaður greinir frá því að hafa orðið fyrir árás tveggja íslenskra unglinga í nótt. Annar hafi verið stuttur en hinn feitur. Telur hann að kynþáttahatur hafi verið orsök árásarinnar.

„Ég og kærastan mín vorum að fara út af Kaffibarnum um klukkan eitt á föstudagskvöld þegar við urðum fyrir árás tveggja unglinga (annar var stuttur en hinn aðeins hærri og feitur),“ segir maðurinn á samfélagsmiðlinum Reddit.

Segir hann að atvikið hafi átt sér stað nálægt Skólavörðustíg 12. Lögregla var kölluð til.

„Þeir fóru í veg fyrir okkur og litu út fyrir að ætla að draga upp hníf. Ég öskraði eins hátt og ég gat á hjálp. Því miður kom enginn til aðstoðar,“ segir maðurinn. Unglingarnir hafi kýlt hann nokkrum sinnum.

„Ég reyndi að komast út úr aðstæðunum. Þegar ég steig til baka þá fór kærastan mín á milli og þeir kýldu hana líka. Á þeim tímapunkti gat ég ekki staðist freistinguna að sparka. Og ég féll í götuna af því að ég missti jafnvægið við sparkið. Á meðan náði kærastan mín að fá einhvern til að koma að og koma þeim frá okkur.“

Árás sprottin af kynþáttahatri

Maðurinn segist ekki vera í nokkrum vafa um ástæðu árásarinnar. Hún hafi verið sprottin af kynþáttahatri. Það eina sem unglingarnir hafi sagt við hann var: „Hvað heitir þú?“

„Það var frekar augljóst að þessi árás var sprottin af kynþáttahatri. Ég lít ekki út fyrir að vera Íslendingur,“ segir hann og reynir að gefa lýsingu á unglingunum tveimur.

Eftir árásina ræddi hann við mann fyrir utan verslunina 12 tónar við Skólavörðustíg 15 og sá maður hjálpaði honum að hringja á lögregluna um fimm mínútum eftir árásina en þá voru þeir horfnir á brott.

Sá stutti leiðtoginn í sambandi þeirra

Segir hann að sá stutti hafi verið leiðtoginn í sambandi þeirra. Hann hafi verið sá sem hóf árásina. Var í kringum 170 sentimetra hár, í svörtum jakka og um 16 eða 17 ára gamall.

Sá feiti hafi verið fylgjandi í sambandi þeirra eða áhangandi. Var um 180 sentimetrar að hæð og í yfirvigt. Einnig í svörtum jakka og á aldrinum 16 eða 17 ára.

„Við vonum innilega að þið lendið ekki í þessu,“ segir hann að lokum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sigurður Kári fór alltaf í kröfugöngu á 1. maí en segir skugga liggja yfir deginum í ár – „Með ólíkindum“

Sigurður Kári fór alltaf í kröfugöngu á 1. maí en segir skugga liggja yfir deginum í ár – „Með ólíkindum“
Fréttir
Í gær

Efling lætur Morgunblaðið heyra það – „Mikið óskaplega er þetta smámannleg fyrirsögn“

Efling lætur Morgunblaðið heyra það – „Mikið óskaplega er þetta smámannleg fyrirsögn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Palestínski fáninn verður leyfður í Eurovision höllinni en keppendur mega ekki lengur flagga regnbogafánanum

Palestínski fáninn verður leyfður í Eurovision höllinni en keppendur mega ekki lengur flagga regnbogafánanum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Karl konungur um greininguna – „Ógnvekjandi reynsla að vera sagt að þú sért með krabbamein“

Karl konungur um greininguna – „Ógnvekjandi reynsla að vera sagt að þú sért með krabbamein“