fbpx
Sunnudagur 04.maí 2025
Fréttir

Systir Thelmu flutti til Spánar: „Hafa ákveðið að þau séu ekkert endilega að koma aftur heim“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 19. nóvember 2024 12:00

Samsett mynd: VIðreisn/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er mikilvægt að við höldum okkar fólki hér heima. Þegar fólk eins og systir mín finnur sig í þeim raunveruleika að fá betri tækifæri og sanngjarnara lífsviðurværi erlendis, hefur það víðtæk áhrif á samfélagið okkar.“

Þetta segir Thelma Rut Haukdal Magnúsdóttir í aðsendri grein á Vísi í morgun. Thelma, sem skipar 7. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, segir í grein sinni frá 27 ára systur sinni sem ákvað nýlega að flytja með litlu fjölskylduna sína til Spánar.

Verðbólga og hækkandi kostnaður

„Hún fann þar sitt drauma nám og þau voru líka orðin þreytt á efnahagslegri óvissu á Íslandi, þar sem verðbólgan og hækkandi kostnaður hefur mikil áhrif á ungt fólk sem er byrjað að búa. Það er raunveruleiki sem við getum flest öll tengt við í núverandi ástandi,“ segir hún.

Thelma segir að á Spáni hafi fjölskyldan upplifað að þau fái frekar tækifæri til þess að njóta þess tíma sem þau hafa með börnunum á meðan þau eru lítil.

„Þau hafa því ákveðið að þau séu ekkert endilega að koma aftur heim. Þau hafa ekki áhuga á því að tapa æskunni í þessu hamstrahjóli sem einkennir okkar samfélag vegna ótryggs efnahagsástands og ríkisstjórnar sem hefur lagt áherslu á sérhagsmunagæslu,“ segir hún.

Margir eins og hún að fara

Thelma segist vissulega syrgja það að fjölskyldan sé flutt út og það hafi verið mikill missir fyrir hana persónulega.

„Ekki bara vegna þess að ég mun sakna hennar, heldur líka vegna þess að þau sjá ekki endilega farsæla framtíð á Íslandi vegna ástandsins. Það er erfitt að horfa á eftir fólki sem maður elskar finna betri tækifæri handan hafsins. Það sem mér finnst verst er að svo margir eins og hún eru að fara. Þegar menntað og metnaðarfullt fólk fer, missum við ekki bara hæfileika, heldur líka tækifæri – og það er okkar tap. Þetta er áminning um það að við verðum að bæta lífskjör ef við ætlum að vinna að því að fólk vilji vera hér, og velji Ísland sem framtíðarbúsetukost,“ segir Thelma.

Hún bendir á að Viðreisn standi fyrir stefnu sem miðar að því að bæta hag barna og fjölskyldna. Markmiðið sé að lækka verðbólgu og vexti með því að taka til í ríkisfjármálum.

„Við ætlum þannig að skapa öflugt og stöðugt efnahagsumhverfi. Við viljum að fólk eins og systir mín vilji vera hér, eða að minnsta kosti sjá hag sinn í því að koma aftur heim. Þess vegna þurfum við að leggja áherslu á að skapa þeim örugg lífskjör.“

Grein Thelmu má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Brotaþoli hópnauðgunar í Vesturbæ stígur fram og gagnrýnir umræðuna um málið

Brotaþoli hópnauðgunar í Vesturbæ stígur fram og gagnrýnir umræðuna um málið
Fréttir
Í gær

Snærós miðlar af reynslu sinni – „Ég ætla að kenna allt sem ég kann og það er töluvert get ég sagt ykkur“

Snærós miðlar af reynslu sinni – „Ég ætla að kenna allt sem ég kann og það er töluvert get ég sagt ykkur“
Fréttir
Í gær

Guðni talar um aumingjaskap sem kostar landsmenn milljarða

Guðni talar um aumingjaskap sem kostar landsmenn milljarða
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grunaður um að halda erlendum ferðamanni í gíslingu á Hverfisgötu

Grunaður um að halda erlendum ferðamanni í gíslingu á Hverfisgötu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Óttast að nágranninn færi heita pottinn – „Er ég á einhvern hátt ósanngjarn ef ég vil ekki horfa á annað fólk baða sig af svölunum hjá mér?“

Óttast að nágranninn færi heita pottinn – „Er ég á einhvern hátt ósanngjarn ef ég vil ekki horfa á annað fólk baða sig af svölunum hjá mér?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigurður Kári fór alltaf í kröfugöngu á 1. maí en segir skugga liggja yfir deginum í ár – „Með ólíkindum“

Sigurður Kári fór alltaf í kröfugöngu á 1. maí en segir skugga liggja yfir deginum í ár – „Með ólíkindum“