fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Fréttir

„Þegar ráðherra blikkar ekki auga og segir að óréttlæti sé í raun réttlæti þá fer um mann hrollur“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 17. september 2024 20:00

Bubbi Morthens

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Lögreglumaðurinn segir: ekki benda á mig, ég er bara að gera það sem mér er skipað. Læknirinn segir: ég er bara að gera það sem ég var beðinn um. Ráðherrann segir: ég er bara að fylgja lögum. Það er svo mjó lína á milli þess að henda langveiku barni úr landi og að handtaka fólk út af pólitískum skoðunum eða fyrir það að fæðast samkynhneigður eða fylgja ekki leiðtoganum,“

segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens í grein sinni á Vísi.

Mál palestínska drengsins Yazan Tamimi og brottvísun hans úr landi var rædd á ríkisstjórnarfundi fyrr í dag.  Athygli vekur að þegar rætt var við suma ráðherra ríkisstjórnarinnar að loknum fundinum að þeir voru ekki alfarið á einu máli um brottvísunina.

Ljóst er að Yazan er í sérstaklega viðkvæmri stöðu þar sem hann þjáist af Duchenne vöðvarýrnunarsjúkdómnum. Brottvísun hans úr landi er því þeim mun umdeildari en ella.

Sjá einnig: Ráðherrar tala í kross um brottvísun Yazan

Bubbi bendir á í grein sinni að í gegnum söguna hafi „allskonar óhæfuverk verið framin af ríkisstjórnum sem réttlæta slíkt með því að vitna í lög. Þegar ráðherra vitnar í lög til þess að réttlæta það að flytja barn með ólæknandi sjúkdóm úr landi, út í óvissuna, og fjölskyldu hans með, þá getur hann um leið slökkt á samvisku sinni og sagt: Ég er bara að fylgja lögum. Með því er hinu mannlega ýtt burt og hann fer að sofa, ónæmur fyrir botnlausri skelfingu barnsins. 

Þegar læknir metur barn ferðafært og embættismenn vitna í það, þá má minna á að nóg dæmi eru til um að læknar hafi verið notaðir í gegnum söguna til þess að ljá óhæfuverkum trúverðugleika. Og þó að fjölfatlað barn, sem á ekki mörg ár eftir af lífinu, geti farið um borð í flugvél segir það ekkert um andlega skelfingu þess við þá upplifun. En það segir allt um andlegt ástand þeirra sem framkvæma aðförina að því.“

Bubbi segir að fólk þurfi að vera á verði þegar menn vitna í lög til þess að réttlæta óhæfuverk og níðingshátt.

„Því það gæti auðveldlega sjálft orðið fórnarlamb þeirra sem vitna í lög sem sett voru meðan frelsið svaf á verðinum. Þjóðfélag sem réttlætir slíka meðferð á veiku barni er ekki í góðu standi og það vitum við öll. En þegar ráðherra blikkar ekki auga og segir að óréttlæti sé í raun réttlæti þá fer um mann hrollur. Og þegar hann endurtekur: við erum að fylgja lögum, þá vakna draugar sögunnar sem voru fluttir úr landi vegna þess að þeir voru ekki velkomnir en voru síðan sendir í búðir dauðans.

Að fylgja lögum segir ekkert um mennsku eða kærleika, mildi né velvild. Engin lög sem eru til höfuðs fólki í neyð eiga rúm fyrir slíkt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Telja að ungur maður hafi nauðgað á þriðja tug kálfa til dauða – „Þetta hljómar eins og brandari en þetta er dauðans alvara“

Telja að ungur maður hafi nauðgað á þriðja tug kálfa til dauða – „Þetta hljómar eins og brandari en þetta er dauðans alvara“
Fréttir
Í gær

Kópavogsbær fer í hart gegn ríkinu – Minnihlutinn segist ekkert hafa fengið að vita um málið í rúmt ár

Kópavogsbær fer í hart gegn ríkinu – Minnihlutinn segist ekkert hafa fengið að vita um málið í rúmt ár
Fréttir
Í gær

Alexios og Rafail fengu þunga dóma fyrir kókaíninnflutning til Íslands

Alexios og Rafail fengu þunga dóma fyrir kókaíninnflutning til Íslands
Fréttir
Í gær

Afhjúpa áróður á TikTok – „Svo aumt af SFS að geta ekki komið fram undir eigin nafni“

Afhjúpa áróður á TikTok – „Svo aumt af SFS að geta ekki komið fram undir eigin nafni“
Fréttir
Í gær

Ætla að byggja ofan á Sóltún með gamla fólkið inni – Skelfilegur hávaði mun valda heilabiluðu fólki miklum ótta

Ætla að byggja ofan á Sóltún með gamla fólkið inni – Skelfilegur hávaði mun valda heilabiluðu fólki miklum ótta
Fréttir
Í gær

Þingmenn Samfylkingar vilja ekki mæta í þátt Stefáns Einar – Hann telur Þórð Snæ vera að hefna sín

Þingmenn Samfylkingar vilja ekki mæta í þátt Stefáns Einar – Hann telur Þórð Snæ vera að hefna sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gaseldavélar geti aukið hættu á krabbameini tvöfalt meira hjá börnum en fullorðnum

Gaseldavélar geti aukið hættu á krabbameini tvöfalt meira hjá börnum en fullorðnum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Leigubílstjóri skildi tvær konur eftir úti í hrauni í kolniðamyrkri – „Það er ekki hlaupið að því fyrir ferðamenn að leita réttar síns eftir svona“

Leigubílstjóri skildi tvær konur eftir úti í hrauni í kolniðamyrkri – „Það er ekki hlaupið að því fyrir ferðamenn að leita réttar síns eftir svona“