TAB er danspoppsveit sem er að fara að gefa út sína þriðju smáskífu föstudaginn 7. júní. Lagið heitir Endless Summer og er létt sumarlegt danspopp.
Hver kannast ekki við að vilja að sumarið endist að eilífu? Endless Summer fjallar um það að vilja framlengja sumarið og góðu stundirnar, að vilja eiga sumarástina að eilífu, ekki bara í takmarkaða stund.
TAB skipa Arna Rún Ómarsdóttir, Bjartmar Þórðarson og Tinna Kristinsdóttir. Við fyrstu kynni áttaði þrenningin sig fljótt á sameiginlegri ást á retropoppi frá tíunda áratugnum og fyrsta áratug aldarinnar, dansvænu poppi sem sameinar góðar melódíur og tekur sig ekki of alvarlega. Í frábæru samstarfi við hinn hæfileikaríka Bomarz (Bjarka Ómarsson) hefur hljómsveitin nú gefið út þrjár smáskífur.
Arna og Bjartmar eru ekki nýgræðingar í bransanum og hafa verið að gera tónlist undir eigin nöfnum, Bjartmar indískotið rafpopp, nú síðast Don’t Ever Stop Dreaming sem kom út í maí, en Arna er í þessum töluðu orðum að leggja lokahönd á EP plötu með nýrri frumsamdri tónlist sem kemur út síðar á árinu. Tinna hefur starfað með sönghóp lengi en TAB er fyrsta poppverkefni hennar.
Endless Summer verður aðgengilegt á helstu streymisveitum frá miðnætti núna 7. júní.