fbpx
Laugardagur 24.maí 2025
Fréttir

Þjóðverjar rjúfa áratugagamalt tabú – Undirbúa sig undir stríð

Ritstjórn DV
Mánudaginn 19. febrúar 2024 07:00

Olaf Scholz er kanslari Þýskalands. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þjóðverjar eru einn stærsti bakhjarl Úkraínu þegar kemur að því að útvega hergögn. Nú ætla Þjóðverjar sjálfir að styrkja her sinn og hyggjast nota jafnmikla peninga til þess og þeir gerðu í kjölfar hruns Berlínarmúrsins.

Hér áður fyrr voru þýskir stjórnmálamenn alfarið á móti því að her landsins yrðu efldur og vildu aðeins heimila algjör lágmarksframlög til hersins. En nú hefur þýska þingið samþykkt hæstu fjárframlög til hersins síðan 1992, í raun hæstu framlög sögunnar. Á þessu ári ætla Þjóðverjar að nota 72 milljarða evra í varnarmál, þetta svarar til tæplega 11.000 milljarða króna.

„Við neyðumst ekki bara til að aðstoða Úkraínu við að verjast, þetta þjónar einnig langtíma varnarmálahagsmunum okkar,“ sagði Olaf Scholz, kanslari, þegar hann tók fyrstu skóflustunguna að nýrri skotfæraverksmiðju í vesturhluta Þýskalands, í síðustu viku.

Þjóðverjar eru hlynntir þessum miklu útgjöldum til varnarmála ef marka má niðurstöðu nýrrar könnunar sem PwC gerði um málið. Sögðust 68% aðspurðra styðja þessa ákvörðun.

Það er athyglisvert að Þjóðverjar séu reiðubúnir til að verja svo miklu fé til varnarmála á sama tíma og þeir glíma við efnahagsvanda. Þýska hagkerfið dróst saman á síðasta ári á sama tíma og hagkerfi annarra leiðandi þjóða uxu.

En stjórnmálamenn telja ekki að nú sé rétti tíminn til að spara þegar kemur að varnarmálum. Af milljörðunum 72 koma 52 af fjárlögum ársins en restin verður tekin úr sérstökum 100 milljarða evra sjóði sem var settur á laggirnar strax í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu.

Þjóðverjar eru næststærsti stuðningsaðili Úkraínu, aðeins Bandaríkin hafa veitt meira fé til stuðnings landinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt