Ferðaskrifstofan Tripical Travel er „kröftugt ferðaþjónustufyrirtæki“ eins og því er lýst á heimasíðu þeirra. Fyrirtækið er með skrifstofu í Reykjavík en þar að auki útibú í Aþenu á Grikklandi, Sofiu í Búlgaríu, Helsinki í Finnlandi og Osló í Noregi. Hefur fyrirtækið verið starfrækt síðan 2015 og skipuleggur helst hópferðir af öllum stærðum og gerðum, þar á meðal árshátíðarferðir fyrirtækja, útskriftarferðir og aðrar fyrirtækjaferðir.
Áskorun birtist í Lögbirtingablaðinu í gær þar sem grein var frá því að ferðaskrifstofuleyfi TT ferða ehf. (Áður Tripical Travel ehf.) hafi verið fellt niður af hálfu Ferðamálastofu.
Segir í áskorun:
„Ferðatryggingarsjóður endurgreiðir ferðamanni þær greiðslur sem hann hefur innt af hendi vegna pakkaferðar eða samtengdra ferðatilhögunar sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning vegna þess að leyfi félagsins var fellt niður af hálfu Ferðamálastofu.“
Því er skorað á viðskiptavini fyrirtækisins, sem telja sig eiga kröfur á hendur félaginu, að leggja fram skriflega kröfulýsingu fyrir 2. október. Málsmeðferðin er rafræn og kröfur ber að senda í gegnum island.is á þar til gerðu eyðublaði. Kröfu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem pakkaferðasamningur, ferðalýsingar og kvittanir.
Taka ber fram að hér er áskorun beint að TT ferðum ehf., sem áður hét Tripical Travel ehf. og hefur kennitöluna 460217-1050. Samkvæmt fyrirtækjaskrá er TT Ferdir ehf. skráð sem ferðaskrifstofa og skilaði seinast ársreikningi í desember á síðasta ári fyrir árið 2021. Samkvæmt þeim reikningi nam tap félagsins það ár um 34 milljónum. Eignir voru tæpar 135 milljónir en bókfært eigið fé var neikvætt um 204 milljónir og eiginfjárhlutfall var -161.2 prósent.
Samkvæmt heimasíðu Tripical er þó að finna aðra kennitölu, en sú kennitala samkvæmt fyrirtækjaskrá tilheyrir félaginu Tripical Ísland ehf. Félagið var stofnað árið 2021 og samkvæmt ársreikningi voru tekjur það árið engar og rekstrargjöld engin. Eigið fé nam 3,4 milljónum en skammtímaskuldir voru 3,8. Hlutafé var 500 þúsund. Tripical Ísland er samkvæmt fyrirtækjaskrá skráð sem önnur ótalin fræðslustarfsemi. Þrátt fyrir þessa flokkun fékk Tripical Ísland ehf. leyfi frá Ferðamálastofu í ágúst á seinasta ári ásamt dótturfélaginu Nordical Iceland sem var stofnað árið 2021 og er skráð sem ferðaskrifstofa.
Tripical Travel vakti athygli á síðasta ári þegar Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að ferðaskrifstofunni hefði verið óheimilt að hækka verð pakkaferða útskriftarnema til Krítar með vísan til breytinga á eldsneytisverði. Þá hafði Tripical, tuttugu dögum fyrir áætlaða brottför, tilkynnt framhaldskólanemendum á leið í útskriftarferð að ferðin þeirra hefði hækkað um fimmtán þúsund krónur. Á þessum tíma höfðu nemendur greitt ferðina að fullu m.v. það verð sem samið hafði verið um. Tripical vísaði til þess að samkvæmt skilmálum ferðanna sé þeim heimilt að hækka verð ef verð á eldsneyti hækkar meira en fimm prósent frá því að samningur var gerður. Þetta hafi nemendur samþykkt þegar þeir bókuðu ferðina. Í þessu tilviki hafi eldsneytisverð hækkað um 76 prósent. Neytendastofa tók fram að ef heimilt væri að hækka verð, en ekki heimilt að lækka verð af sömu ástæðum, þá væru skilyrði laga til hækkunar á verði pakkaferðar ekki uppfyllt og því hafi Tripical verið óheimilt að rukka nemendur um þessar 15 þúsund krónur.
Sumar 2020 sagði eigandi Tripical í samtali við Fréttablaðið að fyrirtækið færi í þrot ef útskrifarnemar sem áttu ferðir pantaðir til Ítalíu fengu endurgreitt. Heimsfaraldur hafi snert félagið illa, en þarna stóð fyrirtækið frammi fyrir því að þurfa að endurgreiða rúmlega 650 útskriftarnemum ferðir sínar. Gagnrýndi hún stjórnvöld harðlega og sagði ríkið hafa valdið fyrirtækinu miklu tjóni. Eina leiðin sem félagið hefði til að endurgreiða væri að setja fyrirtækið í þrot. Staðan væri erfið og hafði starfsfólki verið hótað.
Nú er Tripical Travel orðið Tripical Iceland svo þeir sem áttu í viðskiptum við fyrri kennitöluna og telja sig eiga kröfur að heimta, hafa þar til 2. október til að leggja þær kröfur fram.