Anthony Elanga skaust upp á stjörnuhimininn á síðustu leiktíð með Manchester United þegar hann vann sér inn sæti í aðalliðinu.
Elanga er sænskur sóknarmaður sem Ralf Rangnick hafði mikið álit á. Núna þarf Elanga að sanna sig fyrir Erik ten Hag sem er nýr stjóri United.
Elanga er staddur á Mykonos í Grikklandi en með í för er kærasta hans China Navana sem er tvítug líkt og Elanga.
Undirbúningstímabil United hefst á mánudag en Elanga gæti fengið ögn lengra frí eftir þáttöku í landsleikjum með Svíþjóð.