FH er komið í úrslitaleik A-deildar Lengjubikars karla eftir sigur á Stjörnunni í dag. Leikið var á Samsung-vellinum í Garðabæ.
Eggert Gynnþór Jónsson kom FH yfir eftir rúman hálftíma leik. Það reyndist eina mark fyrri hálfleiks.
Emil Atlason jafnaði fyrir heimamenn snemma í seinni hálfleik en þegar stundarfjórðungur lifði leiks kom Kristinn Freyr Sigurðsson FH yfir að nýju.
Ólafur Guðmundsson innsiglaði svo 1-3 sigur FH á 86. mínútu.