Samkvæmt frétt The Sun hélt Cristiano Ronaldo krísufund með umboðsmanni sínum, Jorge Mendes, vegna stöðu mála hjá Manchester United. Óttast þeir að draumaendurkoma kappans til félagsins í sumar gæti endað með ósköpum.
Hinn 36 ára gamli Ronaldo hefur skorað 14 mörk í 29 leikjum í öllum keppnum fyrir Man Utd á leiktíðinni. Það er ekki hans frammistaða sem veldur áhyggjum heldur liðsins. Man Utd er í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Ronaldo er sagður pirraður á stöðunni.
Þá er Portúgalinn ekki sagður heillaður af fótboltanum sem Ralf Rangnick, bráðabirgðastjóri Man Utd, vill spila.
Samkvæmt heimildamanni The Sun sem er náinn Ronaldo þráir leikmaðurinn það að tími hans hjá Man Utd muni ganga vel. Hann sé hins vegar farinn að átta sig á því að það gæti orðið erfitt fyrir hann að vinna titla með félaginu eins og staðan er í dag.