fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Hjúkrunardeild fyrir covid-sjúklinga opnuð tímabundið á Eir

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 7. desember 2021 09:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag verður opnuð á hjúkrunarheimilinu Eir sérstök hjúkrunareining fyrir covid-sjúklinga. Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að deildin sé einkum hugsuð sem sérstakt úrræði fyrir íbúa á hjúkrunarheimilum sem veikjast af völdum Covid-19 og þurfa á sólarhringsumönnun að halda og einnig aldraða sem geta ekki haldið einangrun heima og þurfa umönnun.

Hjúkrunardeildin er í húsnæði þar sem Eir hefur rekið dagdvöl fyrir 24 aldraða. Til að gera þetta mögulegt var dagdvölinni fundið annað húsnæði við Höfðabakka 9. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti sér aðstæður í nýju húsnæði dagdvalarinnar fyrir helgi og ræddi við starfsfólk og stjórnendur.

Willum segir mikilvægt að nú sé til reiðu þessi hjúkrunareining á Eir ef á þurfi að halda. Hún verður einungis notuð fyrir covid-sjúklinga sem eru ekki alvarlega veikir og þurfa ekki á spítalaþjónustu að halda þótt sólarhringsumönnun sé nauðsynleg. „Þetta er enn ein aðgerðin sem heilbrigðisyfirvöld ráðast í til að létta álagi af Landspítala og tryggja að þar þurfi ekki að liggja ekki inni sjúklingar sem hægt er að sinna annars staðar með fullnægjandi þjónustu.“

Nýtt húsnæði fyrir dagdvöl Eirar á Höfðabakka er bjart og rúmgott á einni hæð og með góðu aðgengi fyrir þjónustuþega. Gera þurfti nokkrar breytingar á húsnæðinu til að skapa góðar aðstæður fyrir starfsemina en Íslandsbanki var þar áður til húsa. Þar sem húsnæðið á Höfðabakka er hentugt og rúmgott er til skoðunar hvort mögulegt sé að hafa þar enn fjölbreyttari þjónustu fyrir aldraða sem styður markmið um að efla og bæta þjónustu sem styður við sjálfstæða búsetu aldraðra í heimahúsum sem lengst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kepa fer til Arsenal
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ingibjörg Sólrún fékk nóg af Írisi og eyddi henni af vinalistanum

Ingibjörg Sólrún fékk nóg af Írisi og eyddi henni af vinalistanum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dæmdur nauðgari fær tækifæri hjá Hæstarétti

Dæmdur nauðgari fær tækifæri hjá Hæstarétti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvetur Trump til að hirða SpaceX af Elon Musk eftir atburði gærkvöldsins

Hvetur Trump til að hirða SpaceX af Elon Musk eftir atburði gærkvöldsins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lætur Egil heyra það: „Þú ert hetja að ráðast gegn honum þegar hann er farinn”

Lætur Egil heyra það: „Þú ert hetja að ráðast gegn honum þegar hann er farinn”
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sæþór heldur naumlega velli hjá Sósíalistum – Ályktun ungra sósíalista um að hann skyldi stíga til hliðar olli usla

Sæþór heldur naumlega velli hjá Sósíalistum – Ályktun ungra sósíalista um að hann skyldi stíga til hliðar olli usla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þinghald lokað í máli Yms – Banaði móður sinni með 22 stungum

Þinghald lokað í máli Yms – Banaði móður sinni með 22 stungum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“