fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Guðni forseti biðst afsökunar á að hafa talað um fávita – „Það gerði engum gott, allra síst mér“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 13. september 2021 13:10

Guðni Th. Jóhannesson er Garðbæingur í húð og hár. Mynd/Eyþór

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, biðst skilyrðislausrar afsökunar á því að hafa í sjónvarpsviðtali í síðustu viku notað orðið fáviti í umræðu um viðkvæm og erfið mál. Um er að ræða sjónvarpsviðtal forsetans við RÚV þann 2.september síðastliðinn þar sem hann lét þau orð falla að mikill heiður sé að vera fulltrúi Íslands í fótbolta en þeim heiðri fylgi ábyrgð og sú skylda að vera ekki fáviti.

„Það gerði engum gott, allra síst mér. Afsökunin er skilyrðislaus. Ég mun ekki nota orðið aftur í þessu samhengi þótt það hafi verið gert með þessum hætti í fræðslu í grunnskólum landsins. Það getur kannski átt við þar en alls ekki af minni hálfu. Ég sé svo sannarlega eftir því og ítreka að ég bið allt það fólk, sem ég særði, afsökunar,“ skrifar Guðni.

Hann endurbirtir svo eldri pistil sinn sem snerist um ofbeldisumræðuna innan knattspyrnu- og íþróttahreyfingarinnar. Sá pistill er svo hljóðandi.

Umræða að undanförnu um ofbeldi og áreitni, þöggun og meðvirkni, hefur verið þörf. Þau, sem verða fyrir ofbeldi eða áreitni, eiga ekki að þurfa að þola skömm í eigin huga eða afneitun þess sem gerðist af hálfu annarra. Ekki er hægt að jafna saman ofbeldi og áreitni annars vegar og sárindum vegna ósanngjarns umtals og sleggjudóma hins vegar. Vissulega kraumar reiði víða yfir óréttlæti sem hefur viðgengist en ég er samt hugsi yfir þeim staðhæfingum sem heyrst hafa að í knattspyrnu- eða íþróttahreyfingunni allri ríki hvarvetna óþolandi ofbeldismenning.

Ég hef verið viðloðandi íþróttir frá barnæsku, veit að margt hefur þar mátt betur fara og við skulum vinna saman að því. Ég hef kynnst fjölmörgum leikmönnum, þjálfurum og stjórnarfólki í heimi íþróttanna. Ég tel það ekki góðum málstað til framdráttar að varpa skugga tortryggni yfir allt það fólk. Sama gildir um heim menningar og lista, stjórnmála og stjórnsýslu, fjölmiðla og skóla – alla kima samfélagsins raunar þar sem metoo-byltingin hefur svipt hulu af áreitni og ofbeldi. Við þurfum öll að gera betur en við erum ekki öll undir sömu sök seld. Við þurfum réttlæti, sanngirni og viðurlög við lögbrotum en líka umræðu og fræðslu og leiðir til að leyfa fólki að bæta ráð sitt, sýni það iðrun og eftirsjá.

Hér að neðan má lesa afsökunarbeiðni forsetans:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Risastórt kókaínmál á Austurlandi

Risastórt kókaínmál á Austurlandi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“
Fréttir
Í gær

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést