Clitty Danger er nýjasti og jafnframt fyrsti gesturinn í hlaðvarpinu Átján Plús en hlaðvarpið er í umsjón íslenska klámstjörnuparsins, Köru og Viktors. Clitty hefur undanfarið orðið nafn í burlesque heiminum hér á landi en auk þess að koma fram á burlesque sýningum þá er hún titluð sem BDSM dama.
Í þættinum er rætt um margt, til að mynda ástarsambönd Clitty en hún er gift tveggja barna móðir. Clitty og eiginmaður hennar eru bæði fjölkær (e. polyamorous) en það þýðir að þau eigi bæði í ástarsamböndum með öðru fólki. Clitty á til að mynda kærasta og eiginmaður hennar á kærustu en svo á Clitty einnig elskhuga í fleirtölu.
„Ég fékk að fara með pari sem var mjög vant“
Í upphafi þáttarins byrja Kara og Viktor að tala um komandi ferð sína til Amsterdam í Hollandi en þangað ætla þau í næstu viku til að horfa á kappakstur í Formúlu 1. Þau ætla þó að sjálfsögðu að gera meira en að horfa á bíla keyra hratt en talið barst að swinger-klúbbum í borginni.
Clitty er svo sannarlega sérfræðingur þegar kemur að svoleiðis klúbbum en hún kemur með ýmis ráð og tillögur fyrir Köru og Viktor. „Inni á svona klúbbum eru rosalega sterkar leikreglur, sem ég get skrifað niður á blað fyrir ykkur,“ segir Clitty. „Það er fullt af reglum inni á svona klúbbum. Ég var mjög fegin, ég fékk að fara með pari sem var mjög vant. Þau leiddu mig í gegnum þetta,“ en hún segir parið hafa sagt henni hvernig hún ætti að klæða sig og fleira.
„Það eru búningsklefar þar sem þú klæðir þig úr þínum venjulegu fötum og ferð í eitthvað sexí. Klúbburinn ræður og segir fyrirfram ef það er eitthvað þema en oftast þá nægir fyrir dömuna að vera í einhverju sexí, „lingerie“ eða einhverju, og fyrir gaurinn að vera annað hvort nakinn eða í flottum naríum, snyrtilegum flottum naríum sem þú ert að fíla þig í.“
„Þetta er úti um allt, maður þarf bara að leita aðeins“
Clitty segir að á svona klúbbum sé mikið af hollendingum. „Flestir í Hollandi fara frekar á svona stað á föstudags eða laugardagskvöldi heldur en að fara á barinn. Það er fólk þarna sem er bara fastagestir,“ segir hún og tekur fram að þetta sé ekki stútfullt af túristum.
„Ég er í rauninni að heyra einmitt af þessu í fyrsta skipti á þessu ári, að það séu svona klúbbar úti um allt. Ég vissi ekki að það væru klúbbur í Amsterdam en það „meikar sense“, þetta er náttúrulega ein stærsta og kynferðislegasta borg í Evrópu,“ segir Kara þá.
Clitty segir að swinger-klúbbar séu út um alla Evrópu en hún hefur farið á slíka klúbba í mörgum löndum. „Það eru klúbbar úti um allt í Hollandi, af því hollendingar eru mjög svona sinnaðir. Það eru klúbbar á Spáni, ég hef farið í klúbb á Bretlandi, í Póllandi. Þetta er úti um allt, maður þarf bara að leita aðeins.“
Swing-senan á Íslandi stærri en flesta grunar
Kara var þá forvitin að vita hvort hægt væri að finna svona swinger-klúbba hér á Íslandi en Clitty svarar því neitandi. „Þú kannast samt við swing-senuna hérna heima, sem er stærri heldur en flesta grunar vilja swingerar meina,“ segir Viktor þá og spyr hvernig senan er hér heima.
„Stærri og eðlilegri,“ segir Clitty. „Þetta er ekki ananasinn í körfunni á Seltjarnarnesinu. Swing-senan hér fer aðallega fram í gegnum síðuna SDC.com. Það hefur verið oft bent á þessa síðu og alltaf þegar það er bent á þessa síðu þá stækkar hún um helming, það er rosa mikill áhugi fyrir þessu. Þetta er sem sagt síða fyrir pör aðallega en það er stakt fólk þarna inni,“ segir Clitty.
Þá segir hún að kosturinn við SDC sé sá að þar gefur fólk öðrum notendum einkunn og umsögn. „Þar er fólk mjög fljótt að kynnast og mynda litla hópa, bjóða í partý,“ segir Clitty og Kara segir þá að henni og Viktori hafi einu sinni verið boðið í slíkt partý en þau komust ekki í það.
Hægt er að hlusta á hlaðvarpsþáttinn í heild sinni hér fyrir neðan: