fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Þetta er launapakkinn sem Kane getur fengið í Manchester

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 19. maí 2021 09:16

Harry Kane

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sky Sports sagði frá því í vikunni að enski sóknarmaðurinn Harry Kane hafi tilkynnt Tottenham frá því að hann vilji yfirgefa félagið í sumar. Chelsea, Manchester City og Manchester United hafa öll sett sig í samband við umboðsmann Kane og látið vita af áhuga sínum. Sky segir einnig frá því að Kane vilji helst halda sér á Englandi og þá vill hann að félagsskiptin verði klár fyrir EM sem hefst í júní.

Í fréttum kemur fram að líklegast sé að Kane fari til Manchester, City og United munu berjast um hann. Ensk blöð segja að fjögur félög hafi spurst fyrir um Kane, en um er að ræða United, City og Chelsea. Þá hefur Barcelona einnig lagt fram fyrirspurn.

Manchester City og United hafa bæði mikinn áhuga á Kane og eru bæði sögð klár í að borga honum 300 þúsund pund á viku.

Um er að ræða launapakka upp á 80 milljónir punda en hann er á höttunum á eftir fimm ára samningi. Sagt er að Tottenham vilji um 120 til 150 milljónir punda fyrir Kane í sumar.

Kane er með rúm 200 þúsund pund á viku á hjá Tottenham og gæti fengið verulega launahækkun ef honum tekst að komast frá Tottenham.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Eitt af fórnarlömbunum lýsir vonbrigðum með forráðmenn Liverpool – „Tel að þeir hafi brugðist okkur“

Eitt af fórnarlömbunum lýsir vonbrigðum með forráðmenn Liverpool – „Tel að þeir hafi brugðist okkur“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sauð gjörsamlega upp úr í beinni útsendingu þegar Rikki G stýrði umræðum – „Þetta eru bara staðreyndir vitleysingurinn þinn“

Sauð gjörsamlega upp úr í beinni útsendingu þegar Rikki G stýrði umræðum – „Þetta eru bara staðreyndir vitleysingurinn þinn“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fullyrðir að farið sé að hitna undir Rosenior

Fullyrðir að farið sé að hitna undir Rosenior
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

U-beygja ekki í kortunum

U-beygja ekki í kortunum
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Óvissa um leikmann Liverpool – Áhugi innan og utan Englands

Óvissa um leikmann Liverpool – Áhugi innan og utan Englands
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Chelsea fær sekt og félagaskiptabann

Chelsea fær sekt og félagaskiptabann
433Sport
Í gær

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“
433Sport
Í gær

Szoboszlai hjólar í sína menn fyrir frammistöðuna

Szoboszlai hjólar í sína menn fyrir frammistöðuna