fbpx
Laugardagur 14.mars 2026
433Sport

Eigandi Spotify segist hafa áhuga á því að kaupa Arsenal

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 23. apríl 2021 20:00

Daniel Ek. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Daniel Ek, sænskur stofnandi og eigandi tónlistarstreymisveitunnar Spotify, segist hafa áhuga á því að kaupa Arsenal. Þetta skrifar hann á Twitter.

Mikil mótmæli hafa verið fyrir utan Emirates-leikvanginn, heimavöll Arsenal, í dag og í kvöld. Þar krefjast stuðningsmenn liðsins þess að Stan Kroenke, eigandi liðsins, hverfi á braut. Mótmælin eiga sér stað í kjölfar þess að Kroenke tók þátt í því að reyna að stofna nýja evrópska Ofurdeild. Sú hugmynd fór þó í vaskinn á dögunum.

Nú hefur Ek, sem metinn er á 4,7 milljarða bandaríkjadala, sagt að hann sé tilbúinn til þess að reyna að kaupa Arsenal ef að Kroenke hyggst selja. Þá tók Ek fram að hann hafi stutt liðið allt sitt líf.

Það verður áhugavert að fylgjast með því hvort að Kroenke muni íhuga að selja félagið í kjölfar mótmælanna í dag. Ef til þess kemur er aldrei að vita nema að Daniel Ek slái til og geri tilboð í félagið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Opna samtalið við Rice
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Vilja framherja þrátt fyrir mikla eyðslu síðasta sumar

Vilja framherja þrátt fyrir mikla eyðslu síðasta sumar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Dyche ekki mjög spenntur fyrir starfinu hjá Tottenham

Dyche ekki mjög spenntur fyrir starfinu hjá Tottenham
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Slot biður fólk um að slaka á og draga ekki of stórar ályktanir eftir eina slæma viku

Slot biður fólk um að slaka á og draga ekki of stórar ályktanir eftir eina slæma viku
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Rooney telur að Carrick eigi að fá starfið ef þetta gerist

Rooney telur að Carrick eigi að fá starfið ef þetta gerist
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Starfsmaður skemmdi 50 milljóna króna Ferrari bíl síðustu helgi

Starfsmaður skemmdi 50 milljóna króna Ferrari bíl síðustu helgi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Jay-Z sækist í unga leikmenn United – Stofa hans stækkar og stækkar

Jay-Z sækist í unga leikmenn United – Stofa hans stækkar og stækkar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Trent sparar ekki stóru orðin

Trent sparar ekki stóru orðin
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Chelsea hefur áhuga á leikmanni Arsenal sem sagður er ósáttur

Chelsea hefur áhuga á leikmanni Arsenal sem sagður er ósáttur