fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
433Sport

Mikil spenna á toppnum á Spáni eftir úrslit kvöldsins – Kynþáttafordómar í garð leikmanns Valencia

Helgi Fannar Sigurðsson
Sunnudaginn 4. apríl 2021 21:05

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sevilla sigraði Atletico Madrid í lokaleik dagsins í spænsku La Liga. Úrslitin þýða að meiri spenna er komin í toppbaráttuna á Spáni. Í leik Cadiz og Valencia gengu leikmenn af velli vegna kynþáttafordóma.

Sevilla var betri aðilinn í fyrri hálfleik. Þeir fengu víti strax á 6.mínútu en þá sá Jan Oblak við Lucas Ocampos af punktinum. Það var markalaust í hálfleik.

Á 70.mínútu kom Marcos Acuna Sevilla yfir eftir sendingu frá Jesus Navas. Atleti gerði atlögu að marki Sevilla á lokakafla leiksins en náðu ekki að skora. Sigur heimaliðsins staðreynd.

Real Madrid og Barcelona eru nú farin að anda hressilega ofan í hálsmálið á Atleti. Sevilla er í 4.sæti, með gott forskot á næstu lið á eftir.

Fyrr í dag sigraði Cadiz Valencia. Liðin sigla bæði lignan sjó um miðja deild. Juan Cala skoraði fyrsta mark leiksins og kom Cadiz yfir. Kevin Gameiro jafnaði fyrir Valencia aðeins fimm mínútum seinna. Staðan í hálfleik var 1-1. Sigurmarkið kom svo í blálokin. Þar var að verki Marcos Mauro, hann tryggði heimamönnum í Cadiz 2-1 sigur.

Það sem vakti helst athygli í þessum leik tengdist þó ekki knattspyrnu. Leikmenn Valencia gengu þá af velli í kjölfar þess að talið hafði verið að Mouctar Diakhaby hafi orðið fyrir kynþáttafordómum. Leikurinn hélt þó áfram eftir stutt hlé. Diakhaby var skipt út af.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Meintar njósnir til rannsóknar á Englandi

Meintar njósnir til rannsóknar á Englandi
433Sport
Í gær

Mourinho líklega að taka við – Setur þessi skilyrði

Mourinho líklega að taka við – Setur þessi skilyrði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Wayne Rooney botnar ekkert í ákvörðun Tuchel er varðar Trent

Wayne Rooney botnar ekkert í ákvörðun Tuchel er varðar Trent
433Sport
Fyrir 2 dögum

Bauð öllum leikmönnum í afmælið sitt í gær en mætti svo ekki sjálfur

Bauð öllum leikmönnum í afmælið sitt í gær en mætti svo ekki sjálfur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Klæðaburður Georginu vakti gríðarlega athygli í New York – Sjáðu myndirnar

Klæðaburður Georginu vakti gríðarlega athygli í New York – Sjáðu myndirnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal og Liverpool á eftir dönsku ungstirni

Arsenal og Liverpool á eftir dönsku ungstirni