fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
433Sport

Manchester United sigraði Brighton í lokaleik dagsins

Helgi Fannar Sigurðsson
Sunnudaginn 4. apríl 2021 20:33

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United tók á móti Brighton í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Þeir lentu í kröppum dansi en tókst að lokum að sigra leikinn.

Man Utd stjórnaði leiknum fyrstu 10 mínúturnar eða svo en það var þó Brighton sem komst yfir. Þar var að verki fyrrum leikmaður United, Danny Welbeck. Paul Pogba tapaði boltanum á miðsvæðinu og gestirnir fóru í sókn sem endaði með því að Welbeck skoraði eftir frákast.

Heilt yfir slappur fyrri hálfleikur hjá United sem var undir í hálfleik.

Það var bjartara yfir heimamönnum í byrjun seinni hálfleiks en það vantaði upp á gæðin á síðasta þriðjungi.

Jöfnunarmarkið kom þó eftir rúmlega stundarfjórðung af síðari hálfleiknum. Marcus Rashford skoraði þá eftir stoðsendingu frá Bruno Fernandes.

Eftir markið var stígandi í leik United. Um rúmlega 20 mínútum eftir jöfnunarmark Rashford skoraði Mason Greenwood það sem reyndist vera sigurmarkið. Hann náði þá að koma sér í misheppnað skot Pogba og koma boltanum í netið.

Man Utd styrkti stöðu sína í 2.sæti deildarinnar með sigrinum. Brighton er í 16.sæti, 6 stigum fyrir ofan fallsæti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Meintar njósnir til rannsóknar á Englandi

Meintar njósnir til rannsóknar á Englandi
433Sport
Í gær

Mourinho líklega að taka við – Setur þessi skilyrði

Mourinho líklega að taka við – Setur þessi skilyrði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Wayne Rooney botnar ekkert í ákvörðun Tuchel er varðar Trent

Wayne Rooney botnar ekkert í ákvörðun Tuchel er varðar Trent
433Sport
Fyrir 2 dögum

Bauð öllum leikmönnum í afmælið sitt í gær en mætti svo ekki sjálfur

Bauð öllum leikmönnum í afmælið sitt í gær en mætti svo ekki sjálfur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Klæðaburður Georginu vakti gríðarlega athygli í New York – Sjáðu myndirnar

Klæðaburður Georginu vakti gríðarlega athygli í New York – Sjáðu myndirnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal og Liverpool á eftir dönsku ungstirni

Arsenal og Liverpool á eftir dönsku ungstirni