Átta greindust með Covid-19 innanlands í gær en þeir voru allir í sóttkví. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum sem Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna, greindi DV frá er líklegt að öll smitin tengist hópsmiti í Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla. Fimm smit greindust á landamærum.
Upplýsingafundur Almannavarna hefst kl. 11:03. Greint verður frá tíðindum af fundinum jafnóðum.
Rögnvaldur, Alma og Þórólfur er á fundinum.
Rögnvaldur segist þekkja af eigin raun hvernig það er að vera í sóttkví með fjölskyldu sinni. Hann sendir kveðju til allra sem eru í sóttkví núna. Um 700 manns eru í sóttkví núna.
Fyrir um fjórum dögum greindist klasasmit í fjölskyldu sem leiddi til þess að um 500 urðu að fara í sóttkví og margir smituðust, segir Þórólfur. Öll smitin eru breska afbrigðið.
Þórólfur segir að búast megi við fleiri smitum á næstunni en vonandi verði þeir allir í sóttkví. Þeir átta sem greindust í gær tengjast allir klasasmitinu áðurnefnda. Um 2000 smit voru tekin í gær sem er óvenjulega mikið.
Þórólfur segir að töluverð útbreiðsla sé komin á Covid-veirunni í samfélaginu sem er af völdum tveggja afbrigða af breska afbrigðinu. Þessi þróun veldur áhyggjum því þetta afbrigði er meira smitandi og veldur meiri veikindum í flestum aldurshópum.
Þórólfur bindur vonir við að með þeim hörðu aðgerðum sem gripið hefur verið til takist að koma böndum á faraldurinn fljótt, en það verði þó ekki fyrr en eftir tvær til þrjár vikur.
Þórólfur segir að engin sóttvarnarleg rök séu fyrir því að loka leikskólum en það hefur verið gagnrýnt að leikskólum sé ekki lokað.
Bólusetningar með AstraZenica hefjast fljótlega aftur. Þórólfur segir að efnið veiti um 85% vörn og ekki síður hjá eldri borgurum en yngra fólki. Til stendur að bólusetja eldri aldurshópa með AstraZenica og segir Þórólfur að þær aukaverkanir sem hafa greinst séu hjá yngri aldurshópum. Hann hvetur alla sem fá boð til að mæta í bólusetningu. Hann telur AstraZeneca vera virkt og öruggt bóluefni í aldurshópnum 70 ára og eldri.
Í fyrirspurnum var Þórólfur spurður út í hvers vegna hárgreiðslustofur og snyrtistofur fái að halda áfram starfsemi en ekki sund og líkamsrækt, sem margir telji vera mikilvægari starfsemi.
Þórólfur svaraði því til að hann legði ekki mat á mikilvægi þessarar starfsemi. „Það eru meiri hópar sem koma saman á þessum stöðum heldur en í þessari einstaklingstarfsemi. Þetta er ákveðið út frá sóttvarnalegum sjónarmiðum,“ segir Þórólfur.
Þórólfur var spurður út í mat á því hve margir af þeim sem eru í sóttkví (700) eigi eftir að smitast. Þórólfur sagðist ekki getað svarað til um það en hingað til hafi um 5% af þeim sem lenda í sóttkví smitast af veirunni.
Flestir sem hafa greinst undanfarið eru grunnskólanemendur kemur fram í svari við fyrirspurn um aldursamsetningu smitaðra núna.
Björn Ingi Hrafnsson spyr með hverjum börn megi leika sér við og hvort „búbblurnar“ ættu við áfram. Þórólfur svaraði því til að búbblurnar væru í gildi og 10 manna fjöldahámark og tveggja metra reglan gildi jafnt hjá börnum eins og fullorðnum.