fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
Fréttir

Ýlfa til liðs við Kaupstað

Bjarki Sigurðsson
Miðvikudaginn 24. febrúar 2021 13:16

Mynd: Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kaupstaður fasteignasala hefur ráðið Ýlfu Proppé Einarsdóttur sem sérfræðing varðandi lántöku til kaupenda fasteigna. Ýlfa er vottaður fjármálaráðgjafi frá samtökum fjármálafyrirtækja (SFF) og hefur mikla reynslu úr bankageiranum. Ýlfa starfaði áður hjá Íslandsbanka sem yfirmaður einstaklingssviðs í útibúi bankans á Höfðabakka. Ýlfa starfaði áður hjá BYR, þar sem hún var þjónustustjóri og síðar útibússtjóri, og hjá SPRON, þar sem hún var meðal annars þjónustustjóri.

Ýlfa mun leiðbeina viðskiptavinum Kaupstaðs varðandi lántöku við fasteignakaup. „Kaupendur eiga þess kost að fá leiðbeiningar um möguleg lán, svo sem út frá greiðslugetu og lánshlutfalli og hvað þarf til að standast greiðslumat og gögn þar að lútandi. Þá býðst þeim að fá samantekt yfir þá lánveitendur á húsnæðislánamarkaði sem til greina koma miðað við kaupskilmála og greiðslubyrði ef til lántöku kemur sem og breytingar á henni ef verðlag og vaxtaumhverfi breytist,“ segir Ýlfa.

„Með greiningu getum við sagt að meiri líkur verði á því að kaupendur fái fjármögnun hjá þeim lánastofnunum sem þeir leita til. Kaupendur þurfa alltaf að fara í gegnum greiðslumat hjá þeirri lánastofnun sem þeir sækja um lánið hjá til að fá fjárveitingu. Við trúum því að með þessu ætti ferlið að styttast og færri falli á greiðslumati og því góður kostur fyrir seljendur. “ segir Ýlfa ennfremur.

„Við erum afar ánægð að fá Ýlfu til liðs við Kaupstað. Hún hefur gríðarlega mikla reynslu úr fjármála- og bankageiranum sem mun nýtast okkur og viðskiptavinum okkar mjög vel. Við erum líklega fyrsta fasteignasalan hér á landi til að ráða í stöðu fjármálaráðgjafa og bjóða upp á þessa þjónustu,“ segir Einar G. Harðarson, eigandi Kaupstaðs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vegfarandi stórslasaðist eftir að ekið var á hann og hund hans á Langholtsvegi – Ökumaðurinn sýknaður

Vegfarandi stórslasaðist eftir að ekið var á hann og hund hans á Langholtsvegi – Ökumaðurinn sýknaður
Fréttir
Í gær

Fékk hroll þegar hún las bréf MAST um mál hundsins Úffa – „Stofnanir verða að sýna mannúð“

Fékk hroll þegar hún las bréf MAST um mál hundsins Úffa – „Stofnanir verða að sýna mannúð“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Landsréttur mildaði verulega dóm yfir ungum stórsmyglara

Landsréttur mildaði verulega dóm yfir ungum stórsmyglara
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mohamad Kourani kominn á almennan gang á Hólmsheiði innan um tvo Alzheimer-sjúklinga

Mohamad Kourani kominn á almennan gang á Hólmsheiði innan um tvo Alzheimer-sjúklinga