fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
433Sport

Klopp biður fólk um að hafa ekki áhyggjur af sér – „Ég sef lítið en er fullur af orku“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 15. febrúar 2021 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool er elskaður og dáður af stuðningsmönnum félagsins og það eðlilega. Klopp tókst að koma Liverpool aftur í fremstu röð eftir erfið ár, sigurinn í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð færði stuðningsmönnum félagisns ómælda gleði. Veðbankar á Englandi telja mestar líkur á því að Jurgen Klopp stjóri Liverpool hætti næstur í starfi í ensku úrvalsdeldinni. Titilvörn Liverpool hefur ekki gengið vel og virðist liðið í frjálsu falli þessa dagana.

Liverpool hefur tapað þremur deildarleikjum í röð og virðist útilokað að liðið endurheimti titil sinn. Umræðan getur verið fljót að breytast í ensku úrvalsdeildinni og nú velta margir framtíð Klopp fyrir sér. Gengi Liverpool hefur ekki bara haft áhrif á Klopp en móðir hans lést á dögunum, vegna faraldursins getur Klopp ekki farið til Þýskalands og gengið með hana síðasta spölinn.

Stuðningsmenn Liverpool vildu senda honum kveðju og hengdu upp borða fyrir utan Anfield. „Jurgen Klopp, þú gengur aldrei einn,“ stendur á borðanum fyrir utan Anfield sem má sjá hér að neðan.

Klopp segir að stuðningsmenn liðsins þurfi ekki að hafa áhyggjur af sér. „Þetta er fallega gert en ekki nauðsynlegt, ég þarf engan sérstakan stuðning þessa dagana,“ sagði Klopp.

„Ég þarf ekkert frí, það síðasta sem ég vil gera er að tala um einkamál mín. Það vita allir að þetta hefur verið erfitt. Ég er 53 ára gamall, ég hef verið í fótboltanum í 30 ár og þjálfað í 20 ár. Ég get skilið hlutina eftir.“

„Ég er með einkamál en í vinnunni er ég í vinnunni. Það þarf ekki að hafa áhyggjur af mér, skeggið verður meira og meira grátt. Ég sef lítið en er fullur af orku.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Þetta er það dýrasta sem Cristiano Ronaldo hefur nokkurn tímann keypt sér

Þetta er það dýrasta sem Cristiano Ronaldo hefur nokkurn tímann keypt sér
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Jóhann Berg snýr aftur í landsliðshópinn

Jóhann Berg snýr aftur í landsliðshópinn
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Tveir starfsmenn reknir fyrir þetta athæfi sitt í beinni útsendingu – Myndband

Tveir starfsmenn reknir fyrir þetta athæfi sitt í beinni útsendingu – Myndband
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Leikmaður United pirraður við stuðningsmann – „Sýnið einkalífi mínu smá virðingu“

Leikmaður United pirraður við stuðningsmann – „Sýnið einkalífi mínu smá virðingu“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Ronaldo uppljóstrar um leyndarmál á bak við trúlofunina – „Þá komu börnin mín inn“

Ronaldo uppljóstrar um leyndarmál á bak við trúlofunina – „Þá komu börnin mín inn“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sjáðu harkalegar möttökur sem Trent fékk á Anfield og viðbrögð hans

Sjáðu harkalegar möttökur sem Trent fékk á Anfield og viðbrögð hans
433Sport
Í gær

Ronaldo hrósar Arsenal í hástert – Var nálægt því að fara til félagsins

Ronaldo hrósar Arsenal í hástert – Var nálægt því að fara til félagsins
433Sport
Í gær

Þóroddur verður við störf á leik Crystal Palace í vikunni

Þóroddur verður við störf á leik Crystal Palace í vikunni