fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Enski boltinn: Leicester vann þægilegan sigur gegn Liverpool

Alexander Máni Curtis
Laugardaginn 13. febrúar 2021 14:23

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leicester og Liverpool mættust á King Power Stadium í dag en leiknum lauk rétt í þessu.

Fyrri hálfleikur var í rólegri kantinum, bæði lið sóttu stíft en án margra færa.Mo Salah kom svo Liverpool yfir á 67. mínútu eftir frábæra sendingu frá Firmino sem Salah kláraði vel.

Thiago Alcantara gerðist svo brotlegur á 79. mínútu og fékk Leicester aukaspyrnu á stórhættulegum stað og gerði James Maddison sér lítið fyrir og skoraði beint úr spyrnunni. Staðan orðin 1-1. Ekki var fjörið búið fyrir heimamenn en Jamie Vardy kom Leicester yfir á 81. mínútu og fylgdi svo Harvey Barnes fast á eftir með marki á 85. mínútu.

Ekki urðu mörkin fleiri og lokatölur 3-1 fyrir Leicester sem stekkur upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum, Liverpool situr enn í því fjórða en gæti fallið niður í það sjötta vinni Chelsea og West Ham sína leiki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Var leikmaður Tottenham heppinn að fá ekki aftur rautt spjald? – Sjáðu myndbandið

Var leikmaður Tottenham heppinn að fá ekki aftur rautt spjald? – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Arteta vill manninn sem neitaði að fara til Rússlands

Arteta vill manninn sem neitaði að fara til Rússlands
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Van Persie bregst við söngvum um sig – „Láttu þig hverfa“

Van Persie bregst við söngvum um sig – „Láttu þig hverfa“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

UEFA hefur áhyggjur af breytingum á Englandi – Forskotið gæti aukist enn frekar

UEFA hefur áhyggjur af breytingum á Englandi – Forskotið gæti aukist enn frekar