fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024
Fókus

„Óhugnanlega staðreyndin um menn sem ég lærði þegar ég varð strippari“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 22. desember 2020 09:00

Rita opnar sig um reynslu sína í kynflísiðnaðinum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar höfundurinn Rita Therese byrjaði fyrst að starfa sem fatafella átti hún erfitt með að trúa hræsninni í karlmönnum.

Rita gaf nýlega út ævisöguna Come og opnar sig um reynslu sína af kynlífsiðnaðinum. Hún segir frá „óhugnanlegri staðreynd“ sem hún lærði um karlmenn þegar hún byrjaði að strippa. Body and Soul greinir frá.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Rita (@rita_therese__)

Rita byrjaði hjá Bar Bunny. Þar voru konur annað hvort berar að ofan og þjónustustúlkur, eða fatafellur. „Í steggjun þá var það yfirleitt þannig að það þeir fengu nokkrar þjónustustúlkur til að vera í nokkra tíma og svo mætti fatafellan,“ segir hún.

„Ég var orðlaus þegar ég sá fyrstu sýninguna,“ segir Rita og lýsir hefðbundinni sýningu.

„Stelpan strunsar inn í Juicy Couture jogginggallanum sínum, með henni er stór gaur sem heldur á busl-laug og AUX kapli. Hún hverfur inn á baðherbergi. Mennirnir safnast allir saman í hring og það öskrar alltaf einhver: „Fatafellan er mætt!“ Hún kemur út af baðherberginu, oftast í einhverjum geggjuðum búning, og alltaf í stripparahælum. Stóri gaurinn gerir allt tilbúið fyrir hana og stendur síðan aftast í herberginu með krosslagða handleggi.“

Rita segir að hver sýning sé nánast eins, alltaf sömu danshreyfingunum og alltaf brjóst framan í brúðgumann.

„Fyrst fer pilsið, síðan brjóstahaldarinn og að lokum g-strengurinn. En alltaf g-strengur með smellum á hliðinni svo þú getur fjarlægt hann í einum hvelli,“ segir hún.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Rita (@rita_therese__)

Virðingin fór dvínandi

Rita segir að henni hafi þótt mikið koma til sýninganna, en hún hafi áttaði sig á að virðing karlmanna fari dvínandi eftir því hversu langt konur væru tilbúnar að ganga.

„Þegar ég var enn þjónustustúlka þá sat ég alltaf með karlmönnunum að horfa á sýninguna. Á einhverjum tímapunkti sneri yfirleitt einn þeirra sér að mér og sagði eitthvað ljótt um útlit fatafellunnar, kynfæri hennar eða: „Sýningin er skemmtileg en ég er glaður að þú gerir þetta ekki.“ Ég tók eftir því að þessi togstreita var líka meðal samstarfskvenna minna. Þessi aðgreining frá „vondu hórunni“ og „góðu hórunni“,“ segir Rita.

„Sem átján ára stelpa sem vildi samþykki þá féll ég fyrir þessu, en áttaði mig fljótlega að það væru karlmenn og drusluskömm þeirra sem væri fokking vandamálið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Best klæddu stjörnurnar á Met Gala 2024

Best klæddu stjörnurnar á Met Gala 2024
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur segir þetta vera stórkostlega ofmetið fyrir fitutap – Gerðu þetta í staðinn

Ragnhildur segir þetta vera stórkostlega ofmetið fyrir fitutap – Gerðu þetta í staðinn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Alexandra Helga og Gylfi eiga von á öðru barni

Alexandra Helga og Gylfi eiga von á öðru barni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona líta svíturnar í skemmtiferðaskipunum út – Skópússun og einkabrytar

Svona líta svíturnar í skemmtiferðaskipunum út – Skópússun og einkabrytar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“