fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
Fréttir

Sveinbjörn svarar fyrir bréfin til starfsfólks Jóa Fel – „Það var ekki ætlunin að valda neinum hugarangri“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 5. nóvember 2020 12:17

Samsett mynd DV. Sveinbjjörn Claessen (t.v.) og Jói Fel

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Skiptastjóri fær bókhald félagsins í hendur og í því koma fram kröfur. Það er einfaldlega verið að kalla eftir svörum og skýringum fólks. Að því búnu förum við yfir þetta,“ segir Sveinbjörn Claessen, lögmaður, í samtali við DV, en hann hefur fyrir hönd skiptastjóra þrotabús Jóa Fel, Gríms Sigurðssonar, sent fjölmörg bréf á fyrrverandi starfsmenn Jóa Fel og sagt að samkvæmt upplýsingum í bókhaldi félagsins skuldi þeir þrotabúinu peninga. Upphæðirnar sem nefndar eru spanna frá rúmlega 20 þúsund krónum upp í 267 þúsund krónur.

Fyrrverandi starfsfólk hjá Jóa Fel sem hefur fengið svona bréf frá lögmannstofunni Landslög í ábyrgðarpósti hefur tjáð DV að það skuldi fyrirtækinu enga peninga. Úttektir hafi alltaf verið dregnar frá launum og það eigi launaseðlar að sýna. Sumir sem hafa fengið svona bréf hættu störfum hjá Jóa Fel fyrir nokkrum árum.

„Við erum að fá svör og skýringar frá fólki og förum yfir það. Launaseðlar eru vissulega til í bókhaldinu en við töldum heppilegra að kalla eftir skýringum frekar en að fara í gegnum hvern einasta launaseðil mörg ár aftur í tímann. Þetta er einfaldari og fljótlegri leið,“ segir Sveinbjörn.

Sveinbjörn segir að ekki hafi verið ætlunin að valda neinum  hugarangri með bréfasendingum en nauðsynlegt hafi verið að kalla eftir upplýsingum:

„Það var ekki ætlunin að valda neinum hugarangri, tilgangurinn með þessu er alls ekki að búa til æsing heldur þvert á móti. En það er hlutverk skiptastjóra að kanna þennan anga á þrotabúinu. Við förum bara yfir þær skýringar og svör sem við fáum.“

Sjá einnig: Þrotabú Jóa Fel sendir rukkanir á fyrrverandi starfsmenn

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Lík fannst í sjónum á milli Engeyjar og Viðeyjar

Lík fannst í sjónum á milli Engeyjar og Viðeyjar
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Ásgerður Jóna sár út í Ingu Sæland: „Í þriðja sam­tal­inu sagðist hún ekk­ert geta gert“

Ásgerður Jóna sár út í Ingu Sæland: „Í þriðja sam­tal­inu sagðist hún ekk­ert geta gert“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

VÆB áfram í Eurovision!

VÆB áfram í Eurovision!
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sigurbjörg er enn á götunni og engin lausn í sjónmáli

Sigurbjörg er enn á götunni og engin lausn í sjónmáli