fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Sólveig Anna miður sín yfir fátæktinni – „Nú eru þessar manneskjur látnar standa í röð til að fá mat fyrir sig og börnin sín“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 27. september 2020 10:32

Sólveig Anna Jónsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þvílík skömm. Fólk hefur unnið á lágmarkslaunum og knúið áfram hjól atvinnulífsins og hagvöxtinn sem skilað hefur stórkostlegum gróða fyrir einstaka kapítalista. Nú eru þessar manneskjur látnar standa í röð til að fá mat fyrir sig og börnin sín,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í stuttum pistli á Facebook-síðu sinni. Þar deilir hún frétt RÚV þess efnis að 200 fjölskyldur á Suðurnesjum hafi þegið mataraðstoð fyrir helgi og það hafi verið þung spor fyrir suma að mæta í röðina fyrir utan Fjölskylduhjálp í Keflavík. Atvinnuleysi er mikið á Suðurnesjunum og um helmingur atvinnulausra eru útlendingar.

„Þetta fólk hefur ekki getað lagt neitt fyrir eða eignast sitt eigið húsnæði; þegar þú stritar fyrir lágmarkslaun áttu aldrei neitt eftir. Því sem næst allar ráðstöfunartekjur hafa farið í svívirðilegan húsnæðiskostnað á gróðavæddum húsnæðismarkaði á einu dýrasta landi í heimi,“ segir Sólveig Anna ennfremur.

Hún gagnrýnir SA harðlega fyrir áform um að fresta launahækkunum lífskjarasamninganna:

„Ég er miður mín yfir þessu ástandi. Og það er órúlegt að hugsa til þess að Samtök atvinnulífsins ætli, á þessari erfiðu stundu, í stríð við hreyfingu vinnandi fólks á Íslandi, í stað þess að sýna örlitla auðmýkt og viðurkenna að láglaunafólkið hefur verið látið axla endalausar byrðar, og það er einstaklega tímabært að mæta því og fulltrúum þeirra með útrétta sáttahönd. Einstaklega tímabært að byrja að vinna að einhverju sem kalla mætti í það minnsta tilraun til efnahagslegs réttlætis.“

Sólveig Anna tiltekur síðan dæmi af pólskri konu sem heitir Kasia. Hún er einstæð og á þrjú börn. Hún missti vinnuna fyrir fjórum mánuðum í upphafi COVID-faraldursins. Hún reynir að leita að vinnu en ástandið sé mjög erfitt því hún þurfi að greiða leigu og margt annað.

https://www.facebook.com/solveig.a.jonsdottir/posts/10223739708938248

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins