fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025

„Helvítis fokking fokk. Það á ekki af Svarthöfða að ganga á þessum tímum“

Svarthöfði
Sunnudaginn 20. september 2020 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svarthöfði var rétt búinn að bursta rykið af kreditkortinu og farinn að skoða pakkaferðir af áfergju þegar krónaveirukúrfan fékk allt í einu sterasprautu og rauk aftur upp. Helvítis fokking fokk. Það á ekki af Svarthöfða að ganga á þessum tímum. Enn og aftur er það orðið svart og það eru þung orð komandi frá sjálfum SVART-höfða.

Svo saup Svarthöfði svo miklar hveljur að honum svelgdist á rúllukraganum sínum þegar nýjasta hneykslið kom upp á yfirborðið. Stjórnvöld hefðu getað lokkað hingað inn Hollywood-pakkið með alla sína fullu vasa af gulli með því að hækka einhverja endurgreiðslu um ogguponsulítil tíu prósent.

Af hverju vilja stjórnvöld ekki Hollywood til Íslands? Erum við í einhverri stöðu til að horfa á stórframleiðendur kvikmynda ganga burtu frá okkur til að leita hagkvæmari kosta? Ættum við ekki frekar að skríða eftir malbikinu auðmjúk, sleikja á þeim yeezystrigaskóna með útgrátinn maskarann lekandi niður kinnarnar og grátbiðja þau um að gefa okkur annað tækifæri?

Það vakti athygli þegar Netflix ákvað að dömpa ekki landi og þjóð Íslendinga í upphafi kórónaveirufaraldursins því við vorum svo oggisslega dugleg í þessu öllu saman. Flott það! Svo fékk Ísland svo góða landkynningu fyrir að vera til fyrirmyndar. Þarna hefðum við geta fengið bara Hollywood eins og sá bær leggur sig til landsins.

Stjórnvöld eru alltaf til í að liðka til fyrir hinum og þessum auðkýfingnum á Íslandi en virðast ítrekað vanmeta virði listgreina eins og tónlistar, kvikmynda og þátta. Allt atriði sem hafa áður komið Íslandi á kortið.

Sleppum Hollywood lausu á götum landsins með myndavélarnar sínar. Við munum græða á því þegar kórónaveiruballið er búið og þá erum við komin með klikkaða landkynningu.

Engin öskurherferð á öræfum mun jafnast á við George Clooney á Bæjarins bestu. Setjum peningana þangað sem þeir skila okkur bestum árangri.

Ekki í einhverja erlenda auglýsingastofu. Nei, takk, frekar í erlenda kvikmyndagerðarmenn.

Hendum svo kannski í nokkur kvikmyndaver, frekar en einhverja bragga. Verðum fyrsta val Netflix, Disney og hinna risanna þegar kemur að kvikmynda- og þáttagerð. Nóg eigum við af náttúrufegurð og plássi.

Minna eigum við hins vegar af peningum, en það eiga þessir aðilar nóg af. Þeir bara kæra sig um að fá framleiðslukostnaðinn að einhverju leyti endurgreiddan sem við græðum svo margfalt á þegar kemur að markaðssetningu.

Öskrum ekki á öræfum. Öskrum á stjórnvöld að hleypa Hollywood til landsins. Og fyrir alla muni, ef þið þekkið einhvern í Hollywood, bendið honum á að Svarthöfði var sko í uppsetningu nemendafélags síns í framhaldsskóla á þremur leikritum og er sem stendur alfarið verkefnalaus.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Sálfræðingur sem fékk ekki starfsleyfi á Íslandi fór aftur í sálfræðinám en það dugði ekki til

Sálfræðingur sem fékk ekki starfsleyfi á Íslandi fór aftur í sálfræðinám en það dugði ekki til
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Vonar að Antony fái annað tækifæri í vetur

Vonar að Antony fái annað tækifæri í vetur
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Selur klám á netinu og fékk óvænt skilaboð frá einum þekktasta íþróttamanni heims – ,,Ég vildi ekki tala við hann“

Selur klám á netinu og fékk óvænt skilaboð frá einum þekktasta íþróttamanni heims – ,,Ég vildi ekki tala við hann“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Aron mögulega frá í langan tíma

Aron mögulega frá í langan tíma
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Besta deildin: Tvenna frá Patrick dugði ekki til

Besta deildin: Tvenna frá Patrick dugði ekki til
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Spilar fertugur í ensku úrvalsdeildinni

Spilar fertugur í ensku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Lækka verðið um allt að 43 prósent eftir hörð mótmæli

Lækka verðið um allt að 43 prósent eftir hörð mótmæli
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Viltu lækka kólesteróltöluna? – Þá skaltu byrja daginn með að borða þetta

Viltu lækka kólesteróltöluna? – Þá skaltu byrja daginn með að borða þetta