Pétur Magnússon hefur verið ráðinn forstjóri Reykjalundar endurhæfingarmiðstöðvar SÍBS frá og með 1. júní n.k.
Pétur er lyfjafræðingur að mennt og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík með áherslu á mannauðsstjórnun.
Samkvæmt fréttatilkynningu hefur Pétur farsæla reynslu af stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu, en hann hefur stýrt Hrafnistuheimilunum síðastliðin 12 ár. „Á þeim árum hefur hann verið í fararbroddi í öldrunarþjónustu á landsvísu og leitt umfangsmikla uppbyggingu Hrafnistuheimilanna og átt frumkvæði að nýjungum og breytingum í þjónustu við aldraða. Hann hefur víðtæka reynslu af samskiptum við stjórnvöld og félagasamtök sem mun reynast mikilvægt fyrir framtíðarþróun endurhæfingarstarfsemi á Reykjalundi,“ segir í fréttatilkynningu, og ennfremur þetta:
„Reykjalundur er heilbrigðisstofnun í eigu Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga (SÍBS) og vinnur samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Um þjónustuna gildir þjónustusamningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Reykjalundar og þar fer fram alhliða endurhæfing sem miðar að því að bæta lífsgæði, færni og sjálfsbjargargetu þeirra sem þangað leita.“