Halla Bergþóra Björnsdóttir er nýr lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu en hún tók formlega til starfa í morgun og fékk hún fékk góðar móttökur við komuna á lögreglustöðina á Hverfisgötu í Reykjavík.
Að sögn lögreglunnar hefði móttakan verið miklu fjölmennari og íburðarmeiri ef ekki væri fyrir ástandið vegna COVID-19. Lögreglan birti meðfylgjandi myndir af móttökunni en í tilkynningu frá lögreglunni segir:
„Á annarri myndinni fær Halla Bergþóra lögreglukveðju frá yfirlögregluþjónunum Karli Steinari Valssyni og Ásgeiri Þór Ásgeirssyni og Arinbirni Snorrasyni, formanni Lögreglufélags Reykjavíkur, en með þeim eru Hulda Elsa Björgvinsdóttir, sviðsstjóri ákærusviðs, og Helgi Valberg Jensson aðallögfræðingur. Á hinni myndinni tekur Halla Bergþóra við lyklavöldum af Huldu Elsu, sem í dag felast reyndar ekki lengur af lyklum heldur aðgangskorti! Þess má ennfremur geta að Hulda Elsa gegndi lögreglustjórastarfinu tímabundið síðustu mánuðina og eru henni færðar þakkir fyrir vel unnin störf á erfiðum tíma.
Halla Bergþóra, sem er lögfræðingur að mennt, er enginn nýgræðingur þegar lögreglustörf eru annars vegar. Undanfarin ár var hún lögreglustjóri á Norðurlandi eystra og þar áður sýslumaður á Akranesi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu býður Höllu Bergþóra hjartanlega velkomna til starfa, en starfsmenn embættisins hlakka til að eiga við hana gott samstarf um þau fjölmörgu og mikilvægu verkefni sem fram undan eru.“