Elísabet Ronaldsdóttir upplifði alvarlegt andlegt ofbeldi af hálfu sambýlismanns og leitaði að lokum eftir aðstoð hjá Kvennaathvarfinu, þar sem hún dvaldi vikum saman með tvo unga syni. Elísabet er í forsíðuviðtali í nýútkomnu DV.
Hún segist fyrst og fremst hafa verið beitt andlegu ofbeldi og hún hafi aldrei kært það, aldrei einu sinni dottið það í hug. „Mér fannst ofbeldið aldrei vera nógu alvarlegt. Það er einmitt mjög algengt að þolendur talið ofbeldið niður. Andlegt ofbeldi er svakalega lúmskt, það getur tekið smátíma fyrir geranda að koma þér á ákveðinn stað, en þegar þangað er komið er auðvelt að halda þér þar. Það eru líka uppi miklar ranghugmyndir um andlegt ofbeldi, eins og fólk eigi bara að svara á móti og rífa sig upp úr þessu.“
Elísabet á fjögur börn og þau elstu, tveir drengir, voru tveggja og tólf ára þegar hún fór með þá í Kvennaathvarfið. Fyrir þetta viðtal lét hún öll börnin sín vita og segir þau sátt við að mamma sín deili þessari reynslu opinberlega.
„Fyrir tuttugu og fimm árum gekk ég á vegg í mínu ofbeldissambandi og það endaði með því að amma mín, sem ég er skírð í höfuðið á, kom og sótti mig og börnin og fór með okkur í Kvennaathvarfið. Ég var þarna með ofboðslega áfallastreituröskun sem hafði ekki verið meðhöndluð og margt á þessum árum hreinlega í móðu út af henni. Þegar amma kom og sótti okkur var búið að læsa alla skó inni því ég mátti ekki fara neitt út. Við vorum í um tvo mánuði í Kvennaathvarfinu. Það var haldið rosalega vel utan um mig og börnin. Ég var í miklu uppnámi þegar ég kom þangað en náði fljótt að verða róleg. Ég man síðan að sama kvöld og við komum kíkti ég út um gluggann og sá hann þá í bíl fyrir utan. Ég fékk þá svakalegt hræðslukast, í raun áfall.“
Hún segir synina hafa notið sín þarna. „Fyrir utan var körfuboltaspjald og alls konar fleira spennandi fyrir börn. Sá yngri var auðvitað svo lítill, en ég talaði einfaldlega um hlutina eins og þeir voru við þann eldri. Hann segist bara eiga góðar minningar úr athvarfinu. Honum fannst spennandi að fá að horfa á Stöð 2, sofa í koju og síðan fékk hann gefins Juventus fótboltatreyju með mynd af Schillaci sem einhver hafði gefið Kvennaathvarfinu.” Elísabet segir að heimilið eigi að vera friðhelgur staður og það sé áfall fyrir alla að búa á heimili þar sem það sé ekki virt, sérstaklega fyrir börn.
Þetta er brot úr forsíðuviðtali við Elísabetu sem birtist í nýjasta DV. Blaðið er aðgengilegt í heild sinni ókeypis á netinu fyrir þá sem skrá sig á dv.is/skraning
Skráðu þig á dv.is/skraning og lestu DV frítt í maí án skuldbindinga*
Hægt er að velja um tvær leiðir:
Frí áskrift út maí að prentútgáfu með vefaðgangi að blaðinu rafrænt. Verð fyrir mánaðaráskrift er 2.990 kr. að reynslutíma loknum. Engin binding.
Frí vefáskrift út maí. Verð fyrir áskrift 1.590 kr. að reynslutíma loknum. Engin binding. Kynningartilboð
*Gildir aðeins fyrir þá sem eru ekki þegar með áskrift að DV. Kynningartilboðið er frítt í maí en gildir til 31.05.2020 fyrir nýja áskrifendur. Ef kynningartilboði er ekki sagt upp fyrir 31.05.2020 tekur við áskrift sem endurnýjast í mánuð í senn. Uppsögn á áskrift skal senda á askrift@dv.is fyrir 20. hvers mánaðar.