fbpx
Fimmtudagur 22.maí 2025
Fréttir

Ódæmigerð einkenni Covid-19

Auður Ösp
Sunnudaginn 12. apríl 2020 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfir 1.500 manns hafa nú smitast af COVID-19 sem kórónuveiran veldur og á hverjum degi bætast fleiri við. Algengustu einkennum er lýst sem inflúensusýkingu: hósti, hiti og þreyta. En veiran leggst mismunandi illa í fólk. Átta af hverjum tíu sem veikjast fá aðeins væg einkenni og í sumum tilfellum eru þau nær engin.

DV ræddi við þrjá Íslendinga sem eiga það sameiginlegt að hafa nýlega greinst með COVID-19 en einkennin eru ólík.

Eins og að vera með timburmenn

Arna Einarsdóttir fatahönnuður er búsett í Kaupmannahöfn. Hún fékk að vita þann 12. mars síðastliðinn að hún væri smituð af veirunni. Þá tók við einangrun heima við, eins og lög gera ráð fyrir. Þrátt fyrir að liðnar séu meira en tvær vikur frá greiningu sér Arna fram á að vera áfram í einangrun næstu vikurnar. Enda er ekkert annað í boði, vinnustaðurinn hennar lokaður og borgin liggur í dvala.

Arna Einarsdóttir

„Hér er ekki testað nema maður sé alvarlega veikur eða með hita yfir 39 stig. En þeir eru víst eitthvað að breyta um stefnu núna og eru búnir að fatta að það þarf að testa miklu, miklu fleiri.“

Hún fann fyrir einkennum sem hún líkir við nokkurs konar þynnku. Þau lýstu sér meðal annars í höfuðverk og síþreytu. „Ég fékk ekki hita, nema bara rétt 37,8 stig í einn dag. En það varð ekki meira úr því. Annars var þetta bara hósti og mér var illt í lungun- um. Mér var illt í öllum líkam- anum, einkum með bakverki og liðverki. Svo missti ég al- gjörlega bragð- og lyktarskyn í meira en viku,“ segir Arna en hún fann ekki fyrir neinum kvefeinkennum.

Hún segir það hafa verið einna verst hvað líðanin var sveiflukennd frá degi til dags. „Svo er þessi andskoti þrisvar sinnum lengur að ganga yfir en þessi venjulega flensa, eða þannig var það allavega hjá mér,“ bætir Arna við en hún segir sambýlismann sinn einn- ig hafa smitast af veirunni. Bæði fundu þau fyrir gífurlegri þreytu. Hann varð hins vegar mun veikari en hún. „Það voru smá áhyggjur þarna inni á milli. En það rættist vel úr því og við erum orðin hress aftur.“

Hún veit ekki hvernig hún  smitaðist og segist nánast aldrei verða veik. „Eins og hjá flestum Dönum varð lestin fyrir valinu í nánast allan vetur, enda brjáluð úrkoma. Maður var eins og sardína í dós alla daga þegar maður var að fara í og úr vinnu. Annað- hvort hef ég nælt í þetta þar, eða í jóga. Enginn í kringum mig er veikur.“

Grét af verkjum

„Ég hafði ekki hugmynd um að þessir verkir tengdust COVID-19. Ég gúglaði það meira að segja sérstaklega og fór í apótek á Akureyri til að fá ráð en engan grunaði þetta,“ segir Margrét Gauja Magnúsdóttir, jökla- og akstursleiðsögukona, fyrirlesari, námskeiðshaldari, athafnastýra og aktívisti. Hún greindist með COVID-19 eftir hringferð um landið. Hún hélt í fyrstu að hún væri með hægðatregðu.

„Ég vaknaði að morgni 21. mars með vonda magaverki sem bara fóru ekki og voru að hrjá mig í fimm daga. Ég var í vinnunni þegar þetta gerðist. Ég vaknaði með þessa maga- verki á hóteli á Höfn í Hornafirði. Ég átti eftir að keyra hringinn og það var erfitt, en ég harkaði það af mér, tók verkjalyf og lét eins og allt væri í toppstandi,“ segir hún.

Margrét Gauja Magnúsdóttir

„Það var ekki fyrr en ég kom heim, þann 25. mars, og ég fór beint upp í rúm, sofn- aði, vaknaði aftur og mældi mig og var þá komin með hita, að mig fór að gruna þetta og hringdi strax í 1700.“

Margrét segist hafa grátið af verkjum á þessum tíma- punkti. „Þau kölluðu mig strax inn og læknir í geimbúningi tók á móti mér. Hann skoðaði mig í bak og fyrir og ákvað að taka próf. Símtalið fékk ég daginn eftir. Þann 26. mars. Sá dagur var einnig verstur en ég fékk vöðvaverki í bakið sem voru ólýsanlega sárir, á nákvæmlega sama stað og ég hafði verið með verki á fyrir meira en 20 árum eftir bílslys.

Margrét hefur síðan þá fundið fyrir þungum höfuðverk, eyrnaverk og verið með hellu fyrir eyrum. Hún verður lafmóð við það eitt að ganga upp og niður stiga. Þá missti hún allt lyktar- og bragðskyn sem hún segir að hafi verið „mjög fríkuð reynsla“.

„Þetta er glötuð pest, ég líki henni oft við það að fjögurra ára barn sé búið að taka yfir miðtaugakerfið mitt og sé að ýta á alla takkana. Ég geri mér grein fyrir að ég þarf að byggja mig aftur upp eftir þetta og ég get ekki beðið eftir að takast á við það, mun fara út í göngutúra með bros á vör, í hvaða veðri sem er,“ segir Margrét en hún kveðst þak lát fyrir að hafa ekki fengið alvarlegri einkenni.

Hún brýnir fyrir fólki að gefa öllum einkennum gaum. „Ef þú ert með einkenni sem þér finnst óvenjuleg, magaverki, kuldahroll, hausverk eða missir bragð- og lyktar- skyn, þá eru það einkenni. Þér þarf ekki að líða djöful- lega eða vera með háan hita. Þú gætir jafnvel alveg hrist þetta af þér, poppað tvær panódíl og haldið áfram en stoppaðu og hlustaðu á líkama þinn, lokaðu þig af, taktu upp símann og hringdu í 1700. Ef þú reynist jákvæður fyrir CO- VID-19 þá verður þú gripinn af dásamlegu fagfólki CO- VID-teymisins og rakningar- teymisins og þú ert ekki einn.“

Ætlaði að harka þetta af sér

Kristín Ýr Gunnarsdóttir almannatengill greindist með COVID-19 þann 23. mars síð- astliðinn. Fyrstu einkennin voru einungis smávægilegt kvef. Svo tók við þreyta og orkuleysi og vöðvaverkir. Hún fann ekkert fyrir hósta, sem er eitt algeng- asta einkenni veirunnar.

„Ég var „milliveik“ eins og ég hef lýst því, ég var slöpp en fannst ég samt ekki „nógu“ veik til að leggjast upp í rúm. Ég fann fyrir verkjum í líkam- anum en tengdi það við að ég var nýfarin að vinna heima og að stólarnir mínir væru lélegir, eða þá að rúmið væri eitthvað lélegt. Auðvitað ætlaði ég bara að harka þetta af mér.

Á þessum tíma var Kristín þegar komin í sóttkví vegna þess að rúmri vik áður hafði hún verið í samskiptum við smitaðan einstakling. Hún hafði samband við lækni eftir að hún missti bragð- og lyktarskyn. Skyndilega gat hún ekki fundið lykt af ilmvatninu sínu.  Daginn sem hún hefði átt að losna úr sóttkví fékk hún niðurstöðurnar: hún var sýkt af Covid-19.

Það var ljóst að Kristín myndi ekki losna úr prísundinni í bráð. Hún lýsir því sem ákveðnu áfalli að greinast.

„Þú veist ekkert hvert flensan fer þig. Einn daginn var ég hress og næsta máttlaus. Óvissan, og óttinn, voru því viðvarandi ástand á hverjum degi. Það er erfitt fyrir aktíva manneskju eins og mig að hægja svona mikið á mér. Ég hef tekið allan tilfinningarússíbanann á þetta. Þetta er ákveðin æfing í æðruleysi. Það þarf svolítið að láta tímann líða einhvern veginn og lufsast í gegnum dagana.“

Kristín Ýr var einangrun heima hjá sér í rúlega þrjár vikur. Hún er einstæð, þriggja barna móðir og fjarveran frá börnunum reyndist henni gríðarlega þungbær. Hún hefur aldrei verið jaf lengi í burtu frá yngstu dóttur sinni.

Það er erfitt að vera ósjálfbjarga í þessum aðstæðum, en Kristín hefur sterkt bakland og er þakklát fyrir það. „Um daginn kom frænka mín og færði mér blóm. Ég fékk tár í augun, af því að þetta var eina lífið, það eina lifandi sem ég hafði komist í snertingu við í 19 daga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Stór aðgerð í Vesturbæ Reykjavíkur – Viðbragðsaðilar á Hjarðarhaga

Stór aðgerð í Vesturbæ Reykjavíkur – Viðbragðsaðilar á Hjarðarhaga
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Egill segir samanburð Viðskiptaráðs kjánalegan – „Þetta er skrítin framsetning hjá Viðskiptaráði“

Egill segir samanburð Viðskiptaráðs kjánalegan – „Þetta er skrítin framsetning hjá Viðskiptaráði“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Þrír réðust á ungmenni í Hafnarfirði og ógnuðu með hnífi

Þrír réðust á ungmenni í Hafnarfirði og ógnuðu með hnífi
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Trump er ósáttur – „Andlega óhæfur bjáni“

Trump er ósáttur – „Andlega óhæfur bjáni“
Fréttir
Í gær

Sigþór með skilaboð til reiða fólksins: „Forgangsröðunin verður að breytast núna ef ekki á illa að fara“

Sigþór með skilaboð til reiða fólksins: „Forgangsröðunin verður að breytast núna ef ekki á illa að fara“
Fréttir
Í gær

Gunni Helga reiður og pirraður: Áttaði sig á því í gær að launin hans hefðu lækkað – „Ég skammast mín fyrir að hafa ekki vitað um þetta fyrr“

Gunni Helga reiður og pirraður: Áttaði sig á því í gær að launin hans hefðu lækkað – „Ég skammast mín fyrir að hafa ekki vitað um þetta fyrr“