fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Sjáðu hvað það kostar þig að fá greiðslufrest lána – Þetta eru úrræði lánastofnana og leigufélaga

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 2. apríl 2020 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

ASÍ birtir á heimasíðu sinni kostnaðinn við þau úrræði sem stærstu lánveitendur húsnæðislána bjóða upp á en lánastofnanir bregðast nú við fyrirsjáanlegri lækkun á tekjum margra heimila með því að gefa kost á  á frestun greiðslna af fasteignalánum.

Frestun er einkum sett fram sem möguleiki fyrir þá sem nú verða fyrir tekjufalli. Lánastofnanir setja ólík skilyrði fyrir greiðslufresti. Sumar óska eftir að sýnt sé fram á  tekjufall á meðan aðrar fela viðskipavinum sjálfum að meta þörfina fyrir greiðslufresti. Í flestum tilfellum býðst greiðslufrestun ekki ef vanskil voru til staðar fyrir kórónuveirufaraldur. Lánveitendur bjóða mislanga frestun greiðslna, allt frá þremur mánuðum upp í heilt ár.

Kostnaðurinn við að fresta greiðslum húsnæðislána er mismikill eftir lánveitendum. Fyrst þegar frestunarúrræði voru kynnt fylgdi þeim talsverður kostnaður hjá flestum lánastofnunum en margir hafa nú lækkað kostnaðinn vegna kröftugra mótmæla m.a. frá ASÍ. Nokkrir lánveitendur hafa alveg fallið frá því að taka umsýslugjöld.

Við frestun greiðslna af lánum þarf að gera skilmálabreytingu á skuldabréfi. Ekki verður komist hjá því að greiða 2.500 kr. Þinglýsingargjald sem Sýslumaður innheimtir. Kalla getur þurft eftir veðbandayfirliti og kostnaður af því er um 1.000 – 1.500 kr. Einhverjar lánastofnanir taka umsjónagjald vegna þinglýsingar, sem  komast má hjá með því að sjá sjálfur um að koma skjölum til Sýslumanns. Gjaldið er oftast á bilinu 1.000 – 1.500. kr. Þá innheimta lánastofnanir að jafnaði  skjalagerðar- eða skilmálabreytingagjald en hluti lánastofnanna hefur nú fallið frá þeim gjöldum eða lækkað þau.

Hér að neðan er að finna um helstu skilmála og kostnað þessara úrræða hjá stærstu lánveitendum húsnæðislána.

Upplýsingarnar voru sóttar 1. apríl 2020.

Flest úrræði um greiðslufrest eru þannig að ekkert er greitt af láni á frestunartímabili. Vextir reiknast eins og vanalega en í stað þess að greiðast mánaðarlega leggjast þeir ofan á höfuðstól láns að loknu tímabili greiðslufrests. Greiðslubyrði lána verður hærri þegar greiðslur hefjast aftur bæði  vegna þess að borgað er af láni á skemmri tíma og vextir frestunartímabilsins leggjast við höfuðstól. Sumar lánastofnanir bjóða þó uppá að greiða vexti og verðbætur meðan greiðslufrestur stendur yfir. Í þeim tilvikum er einungis afborgun höfuðstóls frestað. Höfuðstóllin vex þá ekki á frestunartímabilinu en hann greiðist á skemmri tíma eftir frestun sem hækkar afborganir í framhaldinu en þó minna en þegar ekkert er greitt. Sumar lánastofnanir  lengja einnig í lánum samhliða frestun og þannig er dregið úr hækkun á greiðslubyrði þegar greiðslur hefjast á ný.

Frestun leigugreiðslna hjá leigufélögum
Hjá leigufélaginu Ölmu er boðið uppá að fresta hluta af allt að þremur leigugreiðslum og hjá Heimavöllum stendur til boða að fresta hluta af sex greiðslum. Þeim greiðslum sem er frestað má svo dreifa á allt að 24 mánuðum hjá báðum félögunum. Bæði félögin bjóða uppá að lækka leigugreiðslur tímabundið um að hámarki helming umsaminnar leigu. Greiðsludreifingin er leigutökum að kostnaðarlausu og án vaxta.

Rétt er að hafa í huga að þessar frestuðu greiðslur dreifast á mun skemmri tíma en frestanir þeirra sem eru að borga af lánum. Leigugreiðslur eftir frestunartímabil verða því töluvert hærri en fyrir. Sé t.a.m. helmingi leigu frestað í 6 mánuði og þeirri frestun svo að þeim tíma liðnum dreift á 24 mánuði þýðir það 12,5% hækkun leigu á því tímabili. Ef frestuninni er dreift á 12 mánuði hækkar leigan um 25% á meðan frestunin er greidd upp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki