fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fókus

Frægar konur úr fegurðarsamkeppnum – Fallegustu leggirnir og vinsælustu stúlkurnar

Fókus
Sunnudaginn 8. mars 2020 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Keppendur í fegurðarsamkeppninni Miss Universe Iceland voru opinberaðir fyrir stuttu og því fannst DV ekki úr vegi að minnast þeirra fegurðardrottninga sem hafa söðlað um og hlotið landsfrægð fyrir annað en bara fegurðina.

Stjörnukeppni

Fjölmargar þekktar konur spreyttu sig í fegurð í Fegurðarsamkeppni Reykjavíkur árið 1995. Meðal keppenda voru Berglind Icey Ólafsdóttir fyrirsæta sem hefur gert garðinn frægan í Bandaríkjunum, Alexía Björg Jóhannesdóttir leikkona, Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, og Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnurekstri. Það var Berglind sem var krýnd ungfrú Reykjavík, Bryndís var vinsælasta stúlkan og Hrafnhildur var kosin besta ljósmyndafyrirsætan. Svo fór að Hrafnhildur bar sigur úr býtum í Fegurðarsamkeppni Íslands það árið.

Fallegustu leggirnir

Árið 1993 vantaði ekki keppnisskapið í konurnar sem kepptu um titilinn í Fegurðarsamkeppni Íslands. Meðal keppenda voru Andrea Róbertsdóttir athafnakona og Brynja X Vífilsdóttir, sem var um tíma ein farsælasta fyrirsæta landsins. Andrea hlaut tvenn verðlaun í keppninni, fyrir fallegustu leggina og var vinsælasta stúlkan, en Brynja endaði í þriðja sæti.

Tvöfaldur sigurvegari

Sjónvarpsstjörnuna Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur þarf vart að kynna en hún varð landsmönnum kunn þegar hún varð fegurðardrottning Íslands árið 2003 eftir að hún bar sigur úr býtum í Fegurðarsamkeppni Suðurnesja. Ragnhildur hefur unnið við sjónvarp nánast frá krýningu og er nú aðstoðardagskrárstjóri RÚV. Tinna Alavis keppti einnig í Ungfrú Ísland þetta árið og komst á pall, en hún er einn vinsælasti bloggari landsins.

Leikandi létt

Ragnhildur Steinunn krýndi arftaka sinn í Ungfrú Ísland árið 2004, fegurðardísina Hugrúnu Harðardóttur frá Selfossi. Í öðru sæti varð Sigrún Bender flugmaður og þriðja sætið vermdi leikkonan Halldóra Rut Bjarnadóttir, sem hefur vakið mikla athygli með leikhópnum RaTaTam.

Spreytti sig í fegurð

Fjölmiðlakonan Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir er mikilsvirt í sínum bransa og er ritstjóri Stundarinnar. Ingibjörg tók þátt í Fegurðarsamkeppni Austurlands árið 1997 en hafði ekki erindi sem erfiði

Kjóllinn frægi

Ómögulegt er að sleppa Manuelu Ósk Harðardóttur úr þessari upptalningu, en hún er eigandi Miss Universe Iceland-keppninnar. Manuela var krýnd ungfrú Ísland árið 2002 í frægum, rauðum kjól sem hnefaleikakappinn Mike Tyson keypti handa henni. Í dag er Manuela einn vinsælasti áhrifavaldur landsins og stórtækur fyrirtækjaeigandi.

Kornung í keppni

Bryndís Schram var aðeins nítján ára þegar hún var krýnd ungfrú Ísland árið 1957. Í framhaldinu lærði hún leiklist í Þjóðleikhússkólanum og sló í gegn sem umsjónarkona Stundarinnar okkar. Þá hefur hún verið iðin í leikhúsgagnrýni í gegnum tíðina og sinnt ýmsum öðrum störfum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Áhrifavaldur tilkynnir eigið andlát rúmum mánuði eftir að frumburðurinn kom í heiminn – „Dauðinn er ógnvekjandi“

Áhrifavaldur tilkynnir eigið andlát rúmum mánuði eftir að frumburðurinn kom í heiminn – „Dauðinn er ógnvekjandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Katy Perry og Orlando Bloom eru hætt saman

Katy Perry og Orlando Bloom eru hætt saman
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sunneva var fórnarlamb ástarsvika og tapaði milljónum – „Hann varð partur af mínu lífi mjög hratt“

Sunneva var fórnarlamb ástarsvika og tapaði milljónum – „Hann varð partur af mínu lífi mjög hratt“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Frosti og Helga selja: „Þetta heimili hefur verið okkar athvarf“

Frosti og Helga selja: „Þetta heimili hefur verið okkar athvarf“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við