fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
Pressan

Kínverjar brenna peninga í baráttunni við kórónaveiruna

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 19. febrúar 2020 07:02

Íslendingar, sem staddir eru erlendis, vilja fylgjast vel með gangi mála.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kínverski seðlabankinn hefur hrundið aðgerðum af stað til að berjast gegn útbreiðslu kórónaveirunnar covid-19 sem nú herjar á landið.  Allt það reiðufé sem fer í gegnum banka landsins er nú sótthreinsað að fyrirmælum seðlabankans. Reiðufé, sem kemur frá miklum áhættusvæðum á borð við sjúkrahúsum, strætisvögnum og matvörumörkuðum á að senda til seðlabankans í stað þess að setja peningana aftur í umferð. Seðlabankinn segir að þessum peningum verði eytt.

CNN Business skýrir frá þessu. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO þá getur kórónaveiran lifað í nokkrar klukkstundir á yfirborðsflötum. Af þessum sökum eru hús, lyftuhnappar, handföng og aðrir staðir sem fólk snertir oft sótthreinsaðir reglulega. Nú er röðin komin að peningum eins og áður sagði. Bönkum hefur verið skipað að sótthreinsa alla peninga með útfjólubláum geislum og háum hita og geyma þá síðan í eina til tvær vikur áður en þeir eru settir aftur í umferð.

Til að bæta upp fyrir þá peninga sem verða teknir úr umferð ætlar seðlabankinn að prenta nýja seðla. Ekki fer sögum af hvað verður gert við mynt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Katie lést í eldsvoða í stúdentaíbúðinni – Læknar gerðu óhugnanlega uppgötvun

Katie lést í eldsvoða í stúdentaíbúðinni – Læknar gerðu óhugnanlega uppgötvun
Pressan
Fyrir 3 dögum

Marsþyrla NASA er með „lokagjöf“ handa mannkyninu – En það er einn hængur á

Marsþyrla NASA er með „lokagjöf“ handa mannkyninu – En það er einn hængur á
Pressan
Fyrir 4 dögum

Jákvæð niðurstaða nýrrar meðferðar við Parkinson

Jákvæð niðurstaða nýrrar meðferðar við Parkinson
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kennedy-fjölskyldan tekur skýra afstöðu gegn umdeildum fjölskyldumeðlimi

Kennedy-fjölskyldan tekur skýra afstöðu gegn umdeildum fjölskyldumeðlimi
Pressan
Fyrir 1 viku

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 1 viku

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð