fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Nýr og öruggari öryggishnappur fyrir eldri borgara og fatlaða kynntur

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 2. október 2019 16:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öryggismiðstöðin hefur sett á markað Snjallhnapp fyrir eldri borgara, fatlað fólk og aðra þá sem þurfa aðstæðna sinna vegna að njóta aukins öryggis heima við og geta kallað eftir tafarlausri aðstoð.

Grunnvirkni Snjallhnappsins byggist áfram á öryggishnappi sem fólk ber á sér. Því til viðbótar er nú hægt að fá nokkra skynjara setta upp á heimili þess sem er með kerfið, sem greina hreyfingu og gefa færi á að senda boð ef eitthvað bregður út af vana á heimilinu. Aðstandendur fá app í snjalltækin sín og með snjallreglum í appinu er hægt að fá mikilvægar upplýsingar og tilkynningar um velferð og heilsu þess sem ber hnappinn.

,,Snjallhnappurinn er mjög öflug og snjöll tæknilausn fyrir þá sem vilja njóta aukins öryggis heima við. Það er staðreynd að sá hópur sem við skilgreinum sem eldri borgara er að stækka og þar vilja flestir búa sem allra lengst heima. Það er því mikilvægt að bjóða þessum hópi nútímalegar lausnir sem létta þeim lífið og auka öryggi, á sama tíma og aðstandendur fá tækifæri til að fylgjast betur með og bregðast við ef eitthvað bjátar á.  Snjallhnappurinn veitir mun meira öryggi en áður hefur þekkst,“ segir Ómar Örn Jónsson, markaðsstjóri Öryggismiðstöðvarinnar.

Snjallhnappurinn gefur stöðu á viðkomandi, fylgist með og lætur vita ef eitthvað bregður út af daglegri rútínu viðkomandi. Með hefðbundnum hreyfiskynjurum og snjallreglunum er hægt að fylgjast með hvort eitthvað ber út af vana í virkni og hreyfingu á heimilinu. ,,Sem dæmi um snjallreglu í kerfinu má nefna að kerfið getur látið vita af því að viðkomandi sé kominn á ról að morgni dags og sé á hreyfingu um heimilið og ef sá sem notar kerfið skilar sér ekki inn í eldhús í hádegismat eða er óvanalega lengi á salerninu getur kerfið sent aðstandendum tilkynningu. Fólk hefur að sjálfsögðu val um hvernig það stillir upp kerfinu, hversu mikið af upplýsingum það vill deila með aðstandendum, eða hvort það kjósi yfirhöfuð að nýta þann möguleika. Þetta er einfaldlega mjög góður og öflugur valkostur fyrir fjölskyldur sem vilja standa betur saman að velferð þess sem notar hnappinn. Snjallari öryggishnappur getur jafnframt greint hröðun í falli og sent sjálfvirkt boð um líklegt fall jafnvel án þess að þrýst hafi verið á hnappinn sjálfan,“ segir Ómar.

,,Snjallhnappurinn getur verið dýrmætt öryggistæki fyrir eldri borgara og veitir þeim aukið öryggi og aðstandendum hugarró. Snjallhnappur kemur sem viðbót við hefðbundna öryggishnappa sem hafa verið afar vinsælir um árabil. Munurinn er sá að það þarf ávallt að þrýsta á hefðbundinn öryggishnapp ef aðstoðar er þörf.  Með snjallhnappi er hins vegar hægt að fylgjast mun betur með og kerfið lætur vita ef eitthvað bregður út af vana. Þannig er ekki einungis hægt að bregðast við neyð heldur einnig fylgjast með og sjá ýmiss konar mikilvægar vísbendingar um hrakandi heilsu og aðstæður sem þarf að bregðast við. Snjallhnappurinn er tengdur stjórnstöð Öryggismiðstöðvarinnar sem bregst strax við öllum neyðarboðum frá kerfinu. Öryggismiðstöðin hefur markað þá stefnu að bjóða viðskiptavinum sínum snjallari lausnir. Við vorum fyrst á markað með Snjallöryggi fyrir heimili og nú bjóðum við fyrst fyrirtækja upp á snjallari öryggishnappa. Þeir sem eru að nota hefðbundna öryggishnappa geta sett sig í samband við okkur og kynnt sér möguleika þess að uppfæra hnappinn sinn í snjallari lausn,“ segir Ómar enn fremur.

Sjá nánar um Snjallhnappinn

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði
Fókus
Í gær

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir
Fókus
Í gær

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“