„Ferskir þorskhnakkar og þorskbitar eru vinsæl afurð frá okkur, sem við sækjum nú daglega í ferskfiskvinnslu Skinneyjar Þinganess í Þorlákshöfn. Þar veiða menn og vinna hágæða ferskan fisk alla daga frá bátum útgerðarinnar. Humarsalan býður viðskiptavinum sínum upp á þessa brakandi fersku afurð sem við dreifum daglega inn á veitingastaði og mötuneyti um allt land,“ segir Jakob Hermannsson, sölustjóri Humarsölunnar.
Spriklandi ferskur fiskur
Humarsalan sérhæfir sig í sölu á spriklandi ferskum fiski, humri og öðrum skelfiski fyrir verslanir, veitingahús, veisluþjónustur og einstaklinga. „Humarinn og fersku þorskhnakkarnir eru langvinsælastir en við erum sérfræðingar í sjávarfangi og bjóðum aðeins upp á hágæða hráefni,“ segir Jakob.
Fyrsta flokks hágæðahumar
Humarsalan var stofnuð í janúar 2004. „Markmið okkar hefur ávallt verið að bjóða upp á fyrsta flokks fisk allt árið um kring og veita fyrirtaks þjónustu,“ segir Jakob. Fljótlega eftir stofnun fyrirtækisins var viðskiptavinum einnig boðið upp á steinbíts- og skötuselskinnar, sem njóta gríðarlegra vinsælda. „Orðstír fyrirtækisins hefur vaxið jafnt og þétt og má með sanni segja að merki Humarsölunnar sé tákn um gæði,“ segir Jakob.
Íslenskt hráefni í hæsta klassa
„Við bjóðum aðeins upp á hráefni í hæsta klassa frá öflugustu humarútgerð landsins, en það hefur löngum loðað við Hornafjörð að þar sé besta humarinn að fá,“ segir Jakob. Humarsalan selur einnig aðrar afurðir Skinneyjar –Þinganess. „Steinbítskinnar og léttsaltaðar þorsklundir njóta orðið sífellt aukinna vinsælda og finnum við fyrir miklum áhuga á íslensku sjávarfangi jafnt hjá veitingastöðum og hinum almenna neytanda.“
Mikið af nýjungum í gegnum árin
Humarsalan býður upp á mjög mikið úrval af humri með skel og án skeljar og hefur skelfletti humarinn orðið sífellt vinsælli. „Fólk er farið að nota skelfletta humarinn í ótrúlegustu matargerð eins og t.d. ommelettur, pitsur, samlokur og margt fleira. Einnig hafa aðrar íslenskar sjávarafurðir eins og steinbítskinnar, skötuselskinnar, léttsaltaðar þorsklundir, ásamt innfluttu sjávarfangi eins og risarækju, hörpuskel, túnfiski og fleiru verið mjög vinsælar. Á vörulista Humarsölunnar hafa verið að bætast við nýjungar í gegnum árin og koma viðskiptavinir Humarsölunnar víða að. Við erum því bjartsýn og sjáum mikið af tækifærum,“ segir Jakob að lokum.
Í vefverslun fyrirtækisins, www.humarsalan.is, er að finna gott yfirlit yfir vöruúrvalið. Einnig má finna þar fjölmargar uppskriftir af humar- og fiskréttum.
Sími: 867-6677
Netfang: humarsalan@humarsalan.is