„Þetta er allt frá einstaklingum upp í stórfyrirtæki og stofnanir, bæði stórar sem smáar merkingar, allt frá sandblásnum filmum yfir í bílamerkingar og ljósaskilti. Þetta er afskaplega fjölbreytt,“ segir Halldór Árnason, framkvæmdastjóri skiltagerðarinnar Fagform, sem staðsett er í Gagnheiði 55 á Selfossi. Þó að fyrirtækið sé ekki stórt er starfsemin blómleg og hefur farið sívaxandi, sérstaklega síðustu fjögur árin, en Fagform fagnar 25 ára afmæli í ár.
Aðspurður segir Halldór að starfsemin hafi þróast mikið á síðustu árum og ljósamerkingar séu að verða sífellt fyrirferðarmeiri: „LED-væðingin hefur þar mikil áhrif. LED-ljósin eru dýrari lausn í upphafi en síðan verður mikill rafmagnssparnaður af þeim til lengri tíma litið og því er þetta hagstæður kostur sem sífellt fleiri nýta sér.“
Halldór segir að bílamerkingar séu mjög stór hluti af starfseminni enda vart hægt að hugsa sér betri og ódýrari auglýsingu en að merkja vel bíl fyrirtækisins. Segir Halldór að sprenging hafi orðið í bílamerkingum hjá Fagformi síðustu þrjú árin.
Vandasöm verkefni fyrir opinbera aðila
„Kúnnahópurinn hefur stækkað ört á síðustu fjórum árum og meðal annars hafa bæst við stórir opinberir aðilar. Við erum til dæmis einn af fjórum aðilum í rammasamningi við Vegagerðina þar sem við framleiðum skilti eftir ströngum kröfum þeirra,“ segir Halldór, en það er mikið ferli að komast í gegnum rammasamning ríkisins og veitir fyrirtækinu óneitanlega gæðastimpil.
Sumarið er háannatími í þessum bransa þar sem útimerkingar og skilti leika stórt hlutverk. „Það hafa alltaf verið árstíðasveiflur í þessu en þetta hefur jafnað sig nokkuð út hjá okkur síðustu ár og nú finnum við ekki fyrir þessari lægð í janúar og febrúar sem er svo algeng í þessu fagi, vegna þess að við höfum fengið traust verkefni gegnum rammasamningana ásamt því að þjónusta flest sveitarfélög á Suðurlandi.“
Sem fyrr segir sinnir Fagform stórum og smáum verkefnum fyrir stjóra og smáa aðila, einstaklinga, fyrirtæki, ríki og borg. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni Fagform.is og einnig gefur að líta hér með greininni myndir af nokkrum verkefnum. Símanúmer er 482-3266 og netfang fagform@fagform.is