Sumarskóli TBR hefur verið starfræktur í um 30 ár. Þetta er alhliða íþróttaskóli og eru fjölmargar íþróttagreinar á dagskrá. Badmintoníþróttin skipar þó veglegan sess, enda er hún aðalíþrótt TBR. Við starfrækjum íþróttaskóla fyrir 6–13 ára börn í sumar. Skipt er í hópa eftir aldri.
Á námskeiðinu er stefnt að því að kynna nemendum helstu grunnatriði badmintoníþróttarinnar, s.s. grip, uppgjöf og háhögg. Kennslan fer bæði fram á leikjaformi og í formi tækniæfinga og skiptist erfiðleikastig þeirra eftir aldri og getustigi þátttakenda. Einnig kynnast nemendur helstu leikreglum.
Við leggjum mikla áherslu á að námskeiðið sé fjölbreytt, ánægjulegt og skemmtilegt og við nýtum okkar frábæra staðsetningu í Laugardalnum og einnig spennandi lóð umhverfis TBR-húsið. Áhersla er lögð á fjöruga leiki og þroskandi og við erum mikið úti við ef veður leyfir. Á hverju námskeiði er m.a. farið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og í sund í Laugardalslaug. Í lok hvers námskeiðs er pylsupartí, leikið í hoppukastala og fleira skemmtilegt gert.
Boðið verður upp á bæði heils- og hálfsdagsvistun, frá kl. 9–13 og 9–16. Möguleiki er á gæslu frá kl. 8–9 og frá kl. 16–17. Þá er boðið upp á léttan hádegisverð fyrir þau börn sem eru í heilsdagsvistun.
Þjálfarar eru m.a. Atli Jóhannesson íþróttafræðingur, Árni Þór Hallgrímsson badmintonþjálfari, Jóhann Kjartansson badmintonþjálfari, o.fl. Öll börn í Sumarskólanum fá jafna viðurkenningu fyrir þátttöku og verðlaunapening eins og stefna ÍSÍ í þjálfun barna og unglinga segir til um.
Námskeið 1 – 11. júní–21. júní ** 8 daga námskeið
Námskeið 2 – 24. júní–5. júlí ** 10 daga námskeið
Námskeið 3 – 6. ágúst–16. ágúst ** 9 daga námskeið
Upplýsingar og innritun eftir 9. maí í síma 581-2266.
Verð á námskeiðum:
8 daga námskeið:
Verð er 11.800 kr. fyrir námskeið kl. 9–13
– 21.200 kr. fyrir námskeið kl. 9–16
9 daga námskeið:
Verð er 13.300 kr. fyrir námskeið kl. 9–13
– 23.900 kr. fyrir námskeið kl. 9–16
10 daga námskeið:
Verð er 14.700 kr. fyrir námskeið kl. 9–13
– 26.500 kr. fyrir námskeið kl. 9–16.
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1, 104 Reykjavík
Skráning hefst 10. maí í síma 581-2266
Nánari upplýsingar á tbr.is
Netpóstur: tbr@tbr.is