fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Unnið að endurreisn WOW ?

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 29. mars 2019 10:36

Ein af vélum WOW air.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stundum skrifar Orðið á götunni sig sjálft. Í þetta skiptið er notast við hugleiðingar Baldvins Jónssonar, en hann er tengdafaðir fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar, samkvæmt niðurstöðu ættfræðisviðs Frjálsrar fjölmiðlunar.

Baldvin, sem hefur víðtæka reynslu úr viðskiptalífinu og þykir vel tengdur, skrifar á Facebook síðu sína hvað verði um WOW eftir gjaldþrotið, sem teljast verður nokkuð fróðlegt, ef rétt reynist.

Baldvin skrifar:

„Orðið á götunni segir að tugir ferðafyrirtækja séu nú að safna fjármunum og ábyrgðum vegna lántöku og geri tilboð í WOW. Dreifð eignaraðild. Gert er ráð fyrir ca. kr. 10.000.000 að meðaltali. Hugmyndin er að reka félagið einsog önnur almennings farartæki svo sem strætó og lestar.
Gert er ráð fyrir að verð miðist við vegalengd og verði föst verð miðað við $ gengi. Yfirbygging verði í lágmarki og leitað eftir samstarfi við önnur félög með þjónustu á jörðu niðri. Almenningi verði einnig gefinn kostur á kaupum.
Aðeins verður boðið uppá einn klassa einsog í strætó. Fólk geti keypt miða á flugvelli en líka pantað á netinu. Fyrstur kemur fyrstur fær. Reikna menn með 4 til 6 áfangastöðum í byrjun og myndarlegt eigið fé.
Fyrir nokkrum árum nam flugkostnaður um 50 til 60% af ferðakostnaði miðað við vikuferð. Nú er þessi hlutur orðinn um 20% af ferðakostnaði. Ferðamenn eyði sínum peningum á jörðu niðri og flug sé bara strætó eða lest og lágmarksþjónusta.
Þeir sem standa að þessu munu því vilja fara ótroðnar slóðir ef ég skildi þetta rétt og vekja það mikla athygli að fólk segi: WOW.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 10 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 16 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum