BBC skýrir frá þessu. Þetta er fyrsta morðið á mafíuleiðtoga í New York síðan 1985. Gambino-fjölskyldan er ein af fimm ítölsk/bandarískum mafíum í New York.
Vitni segja að Cali hafi veri skotinn að minnsta kosti sex skotum og að síðan hafi morðinginn ekið yfir hann. Ættingjar komu hlaupandi út og sátu grátandi við hlið Cali að sögn vitna.
Lögreglan segist ekki vita af hverju Cali var myrtur. Hann hafði verið við stjórnvöl mafíuveldis Gambino-fjölskyldunnar síðan 2015.