fbpx
Sunnudagur 02.nóvember 2025
Matur

Vígalegar White Russian-bollakökur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Þriðjudaginn 6. nóvember 2018 17:30

Dúndur múffur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Drykkurinn White Russian er í eftirlæti hjá mörgum en hér er hann endurgerður í bollakökuformi. Fullkomið snarl fyrir teitið!

White Russian-bollakökur

Múffur – Hráefni:

1 egg
120 ml rjómi
50 ml Bailey’s
100 g sykur
1/2 tsk. vanilludropar
120 g hveiti
1 tsk lyftiduft
smá salt

Aðferð:

Hitið ofninn í 180°C og takið til 8-10 möffinsform. Stífþeytið rjómann og blandið vanilludropum og Bailey’s saman við. Þeytið egg í lítilli skál og bætið því saman við rjómablönduna. Blandið sykrinum varlega saman við og hrærið síðan þurrefnum saman við. Deilið á milli möffinsforma og bakið í 18-20 mínútur. Leyfið kökunum að kólna og skerið síðan litlar holur í miðjuna fyrir fyllinguna. Passið að holurnar nái ekki alveg í gegnum kökurnar.

Yndislegar bollakökur.

Fylling – Hráefni:

50 g dökkt súkkulaði
50 ml rjómi
2 tsk. vodka

Aðferð:

Setjið súkkulaði og rjóma í skál og hitið í örbylgjuofni í 30 sekúndur. Hrærið í blöndunni og endurtakið þar til súkkulaðið er bráðnað. Blandið vodka vel saman við og deilið fyllingunni í holurnar í múffunum.

Krem – Hráefni:

135 g mjúkt smjör
270 g flórsykur
2 msk. Bailey’s
1/2 msk. vodka

Aðferð:

Þeytið smjörið í 4-5 mínútur og blandið síðan restinni af hráefnunum saman við. Skreytið kökurnar með kreminu og drissið jafnvel smá rifnu súkkulaði yfir herlegheitin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
29.04.2025

Uppáhalds matur barnæskunnar – „Ég skammast mín smá fyrir að segja þetta en það var kallað rónabrauð“

Uppáhalds matur barnæskunnar – „Ég skammast mín smá fyrir að segja þetta en það var kallað rónabrauð“
Matur
18.01.2025

Tveggja barna móðir frá Þorlákshöfn átti næstbesta borgarann

Tveggja barna móðir frá Þorlákshöfn átti næstbesta borgarann
Matur
14.01.2025

Piparkökudeigsís er nýjung frá Skúbb

Piparkökudeigsís er nýjung frá Skúbb
Matur
06.10.2024

Fat af soðnum vélindum vekur mikið umtal – „Þetta verð ég að smakka“ – „Heima fór þetta í hundana í bókstaflegri merkingu“

Fat af soðnum vélindum vekur mikið umtal – „Þetta verð ég að smakka“ – „Heima fór þetta í hundana í bókstaflegri merkingu“
Matur
17.09.2024

Skál komin á framtíðarheimili í hjarta miðborgarinnar

Skál komin á framtíðarheimili í hjarta miðborgarinnar